Hleð spilara!
Viðbótartrygging húseigna
Viðbótarbrunatrygging veitir vernd gegn brunatjónum fari endurbyggingarkostnaður umfram skráð brunabótamat.
Tryggingin bætir tjón af völdum bruna. Viðbótartrygging þessi er eingöngu hugsuð sem viðbót við gilda brunatryggingu fyrir þá sem telja að brunabótamat húseignar sinnar dugi ekki til endurbyggingar eftir tjón.
Eldsvoði, elding og sprenging
Vátryggingin bætir tjón af völdum:
- Eldsvoða.
- Eldingar.
- Sprengingar í gufukatli til upphitunar húsa og tjón af völdum gassprengingar vegna eldunar- og suðutækja og gaslagna til upphitunar húsa.
Vátryggingin bætir ekki tjón:
- Vegna elds er eigi verður talinn eldsvoði, s.s. tjón á munum sem verða fyrir eldi eða hita við upphitun, suðu, þurrkun, reykingu eða þess háttar og brenna af þeirri ástæðu eða skemmast.
- Á rafmagnsvélum, lögnum eða tækjum þegar tjón orsakast af spennubreytingu, ofhitnun, skammhlaupi eða öðru hreinu rafmagnsfyrirbrigði, og spani frá rafmögnuðu óveðri, nema af því leiði eldsvoða eða sé afleiðing eldsvoða.
- Á vél eða katli sem sprengingin verður í.
- Sótfall
- Vátryggingin bætir tjón af völdum:
- Sótfalls sem verður skyndilega og óvænt frá viðurkenndu kynditæki, eldstæði eða blásara.
- Vátryggingin bætir ekki tjón af völdum:
- Sóts eða reyks sem safnast hefur smám saman fyrir við notkun, s.s. sót frá reykháfi eða kertum.
Loftför
Vátryggingin bætir tjón af völdum:
- Loftfara og hluta sem frá þeim falla.
Slökkvi- og björgunaraðgerðir
Vátryggingin bætir tjón af völdum:
- Slökkvi- og björgunaraðgerða þegar markmið með ráðstöfununum er að forðast eða takmarka tjón sem fellur undir vátrygginguna og ráðstafanirnar teljast sérstakar og réttlætanlegar.
Vátryggingin bætir ekki:
- Óbeint tjón sem kann að leiða af bótaskyldum tjónsatburðum, s.s. rekstrartap, töf á framleiðslu eða afhendingu vöru, missi húsaleigutekna o.þ.h.
- Kostnað vegna hreinsunar úrgangs- eða eiturefna í umhverfi eða jarðvegi vegna bótaskylds tjónsatburðar.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
