Hleð spilara!

Verktakatrygging

Verktakatrygging er ætluð verktökum og byggingaraðilum og veitir hún vernd gegn tjónum á þeim mannvirkjum sem þeir eru að byggja.


Tryggingin er víðtæk eignatrygging á verkframkvæmdum verktaka og/eða undirverktaka og bætir skyndilegt og ófyrirsjáanlegt tjón vegna t.d. bruna, innbrots, hruns eða óveðurs á mannvirkjum s.s. byggingum, vegum, jarðgöngum og höfnum.

Vátryggingarfjárhæð byggist á áætluðum kostnaði við verkið samkvæmt verksamningi.

Vátryggingin bætir:

  • Skyndilegt og ófyrirsjáanlegt tjón á hinu vátryggða við framkvæmd verksins á vátryggingarstaðnum.
  • Kostnað vegna hreinsunaraðgerða eftir bótaskylt tjón ef það kemur fram í vátryggingarskírteini.
  • Vélar og tæki vátryggðs, búnað hans, svo sem vinnupalla, verkfæri, vinnuskúra og önnur verðmæti á vátryggingarstað ef það kemur fram í vátryggingarskírteini.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Tjón sem stafa af rangri, gallaðri eða ófullkominni hönnun, áætlunum og/eða útreikningum.
  • Tjón sem stafa af röngu eða gölluðu efni og/eða vinnubrögðum. Þegar um mannvirkjagerð aðra en uppsetningu véla er að ræða er þó bætt munatjón sem verður á öðrum hluta mannvirkisins og er afleiðing af fyrsta tjóni.
  • Venjulegt og eðlilegt viðhald.
  • Óbein eða afleidd tjón af hvaða orsökum sem er.
  • Tjón á peningum, skjölum, reikningum, teikningum, uppdráttum, frímerkjum, verðbréfum, trygginga-skjölum, kvittunum, skuldaviðurkenningum, ávísunum eða umbúðum, svo sem kössum eða boxum.
  • Vöntun eða rýrnun á hinu vátryggða sem kemur fram við birgðatalningu eða reikningsuppgjör.
  • Tjón sem stafa af sliti, rýrnun, tæringu, ryðmyndun eða öðrum eðlilegum umhverfisáhrifum.
  • Tjón á hvötum, kemískum efnum, á eldföstum efnum í ofnum og öðrum slíkum klæðningum þegar útbúnaður er tekinn í notkun og/eða prófaður á ábyrgðartímanum, nema slíkt tjón sé bein afleiðing af tjóni sem vátryggingin tekur til.
  • Tjón sem verða vegna seinkunar verks, þ.m.t. samningsbundnar dagsektir eða vegna þess að verktaki hefur ekki staðið við skyldur sínar.
  • Kostnað vegna hreinsunar úrgangs- eða eiturefna í umhverfi eða jarðvegi vegna bótaskylds tjóns-atburðar.
  • Tjón vegna lögnáms, þjóðnýtingar eða vegna fyrirmæla löglegra yfirvalda.
  • Tjón sem ábyrgðartrygging tekur til ef umfang vátryggingartaka svarar fleiri en fimm ársverkum.
  • Tap eða tjón sem stafar beint eða óbeint, að öllu leyti eða að hluta, af áhrifum tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þessa hvoru tveggja.

Undanþága þessi á við um allar tímaskráningar.

Með "tímaskráningu" er átt við tilgreiningu tíma sem byggist á almanakskerfi þegar tilgreiningin verkar sem upplýsingar, kóti, merki eða með hvers konar öðrum hætti í búnaði, kerfi eða samblandi þessa hvoru tveggja.

Með "búnaði" er átt við hvers konar vélar, tæki, vörur og aðra áþreifanlega hluti eða safn hluta, hvort sem um er að ræða fasteign eða lausafé, þ.m.t. en þó ekki takmarkað við vélbúnað tölva, hugbúnað eða samþætt rafeindakerfi (þ.m.t. örgjörvar og kísilflögur).

Með "kerfi" er átt við hvers konar upplýsingar, fyrirmæli eða safn þeirra, hvers konar miðla fyrir upplýsingar og fyrirmæli á tölvutæku formi, á pappír eða í formi geisla, bylgna, eðlisfræðilegra áhrifa, efnaferla eða á öðru óáþreifanlegu eða áþreifanlegu formi.

Undanþága þessi nær ekki til tjóns sem stafar af bruna, sprengingu, hrapi, innbroti, þjófnaði eða vatnsskaða.