Hleð spilara!

Sumarbústaðatrygging

Allir sumarhúsaeigendur ættu að hafa í gildi sumarbústaðatryggingu sem tekur til tjóna á bústaðnum og innbúi.


Tryggingin bætir tjón á innbúi og húseigendatryggingu (valkvætt) á sumarhúsinu sjálfu vegna t.d. bruna, vatns, innbrots, ráns eða óveðurs. Sé valið að tryggja sumarhúsið þá bætist ábyrgðartrygging sjálfkrafa við sumarbústaðatrygginguna.

Tryggingataki velur sjálfur það innbúsverðmæti sem hann telur henta sér en vátryggingarfjárhæð sumarhússins miðast ávallt við brunabót sem ákvarðast af mati Fasteignamats ríkisins.

Innbú

Eldsvoði, elding og sprenging

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

  • Eldsvoða. Það telst ekki eldsvoði þegar hlutir sviðna eða bráðna ef eldur er ekki laus.
  • Eldingar.
  • Sprengingar.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Tjón sem verður vegna vinnu með sprengiefni við verklegar framkvæmdir.

Sótfall

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

  • Sótfalls sem verður skyndilega og óvænt frá viðurkenndu kynditæki eða eldstæði.

Vátryggingin bætir ekki tjón af völdum:

  • Sóts eða reyks sem safnast hefur smám saman fyrir við notkun.

Slökkvi- og björgunaraðgerðir

Vátryggingin bætir:

  • Tjón og kostnað vegna slökkvi- og björgunaraðgerða þegar markmið með ráðstöfununum er að forðast eða takmarka tjón sem fellur undir vátrygginguna og ráðstafanirnar teljast sérstakar og réttlætanlegar.
  • Kostnað vegna nauðsynlegs flutnings á innbúi í sambandi við bótaskylt tjón.
  • Muni sem glatast við ofangreindar aðgerðir.

Vatn, gufa og olía

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

• Vatns, gufu og olíu sem óvænt og skyndilega streymir úr leiðslum sumarbústaðarins og á upptök innan veggja hans.
• Vatns sem flæðir úr hreinlætistækjum vegna mistaka eða bilana á tækjunum.
• Leka frá frystikistum og kæliskápum.
• Yfirborðsvatns sem orsakast af skyndilegu úrhelli eða asahláku.

Vátryggingin bætir ekki tjón af völdum:

• Utanaðkomandi vatns, svo sem grunnvatns, úrkomu, flóða, sjávarfalla eða vatns frá svölum, þökum, þakrennum eða frárennslisleiðslum þeirra.
• Vatns sem þrýstist upp úr skolp- eða frárennslisleiðslum eða ef skolpleiðslur geta skyndilega ekki flutt allt það vatn er að berst, þó með þeirri undantekningu ef leiðsla stíflast eða springur innanhúss.

Þjófnaður

Vátryggingin bætir tjón vegna:

• Þjófnaðar úr sumarhúsi.

Rán

Vátryggingin bætir tjón vegna:

• Ráns, þegar hinir vátryggðu munir eru teknir með líkamlegu ofbeldi eða hótun um að beita því þegar í stað, sbr. 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. 

Skemmdarverk

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

• Skemmdarverka sem unnin eru af ásetningi.

Vátryggingin bætir ekki tjón af völdum skemmdarverka:

• Vátryggðs sjálfs.
• Maka vátryggðs.
• Einstaklings sem vátryggður býr með í föstu varanlegu sambandi.
• Á munum sem voru utan dyra annars staðar en við sumarhús vátryggðs um stundarsakir. 

Brot eða hrun

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

• Brots eða hruns á innbúi í sumarhúsi vátryggðs vegna tilfallandi bilana.

Vátryggingin bætir ekki tjón:

• Á verkfærum, gleraugum og úrum eða öðrum persónulegum lausafjármunum sem verða vegna brots eða hruns.
• Af völdum vökva sem hellist niður við brot eða hrun.
• Vegna brots eða hruns af manna völdum.

Skyndilegur snjóþungi

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

• Skyndilegs snjóþunga sem sligað hefur þak eða veggi sumarhússins.

Vátryggingin bætir ekki tjón:

• Sem rekja má til byggingargalla. 

Óveður

• Vátryggingin bætir tjón af völdum óveðurs, þegar vindhraði nær 28,5 metrum á sekúndu. Til óveðurstjóna á innbúi teljast eingöngu þau tjón sem verða þegar vindur hefur rofið þak, glugga eða aðra hluta hússins. Séu ekki fáanlegar viðurkenndar upplýsingar um vindhraða á tjónsstað er tjónið varð skal hafa til hliðsjónar við ákvörðun bótaskyldu hvort almennt eignatjón hafi orðið á svæðinu af völdum veðurs er vátryggingar- atburðurinn átti sér stað.

Loftför

• Vátryggingin bætir tjón af völdum loftfara og hluta sem frá þeim falla.

Húseigendatrygging

Vatn, gufa og olía

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

• Vatns, gufu og olíu, sem óvænt og skyndilega streymir úr leiðslum sumarbústaðarins og á upptök innan veggja hans. Vátryggingin greiðir kostnað við uppbrot og rask sem óhjákvæmilegt er til þess að stöðva leka, svo og frágang að nýju vegna slíkra aðgerða, þannig að sumarbústaðurinn sé í sama og eigi verra ástandi en hann var fyrir tjónið. Bætur fyrir uppbrot og rask að öðru leyti en því að stöðva leka greiðast ekki.
• Vatns úr leiðslum í sameign eða sameiginlegum leiðslum húseignar, í hlutfalli við eignarhluta vátryggðs í húseigninni.
• Vatns sem flæðir úr hreinlætistækjum vegna mistaka eða óvæntra og skyndilegra bilana á tækjunum.
• Vatns sem lekur óvænt og skyndilega frá frysti-kistum og kæliskápum.
• Yfirborðsvatns sem orsakast af skyndilegu úrhelli eða asahláku.

Vátryggingin bætir ekki tjón:

• Vegna utanaðkomandi vatns, svo sem grunnvatns, úrkomu, flóða, sjávarfalla eða vatns frá svölum, þökum, þakrennum eða frárennslisleiðslum þeirra.
• Vegna vatns sem þrýstist upp úr skolp- eða frárennslisleiðslum eða ef skolpleiðslur geta skyndilega ekki flutt allt það vatn er að berst, þó með þeirri undantekningu ef leiðsla stíflast eða springur innanhúss.
• Á þeim hlut eða hlutum er tjóninu ollu, svo sem sjálf rörin eða vinnu við lagfæringu eða endurlögn þeirra. 

Frostsprungur

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

• Frostsprungna á innanhúss vatnsleiðslukerfi sumarbústaðarins og tjónið sem verður við það að hitakerfi hússins bilar óvænt og skyndilega.

Innbrot eða innbrotstilraun

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

• Innbrots eða innbrotstilraunar. 

Gler 

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

• Brots á venjulegu, sléttu og glæru rúðugleri, eingöngu þegar það brotnar eftir að það er ísett, inngreypt eða því er á annan hátt endanlega komið fyrir á þeim stað sem því var ætlað að vera á og svo lengi sem það er á sama stað.

Vátryggingin bætir ekki:

• Tjón vegna byggingarframkvæmda eða viðgerða utanhúss á því húsi sem hið vátryggða rúðugler er í, nema um sé að ræða venjulegt viðhald svo sem málun.
• Tjón vegna viðhalds eða aðgerða sem eru framkvæmdar á glerinu, ramma þess eða umhverfi.
• Tjón sem verður á rúðugleri þegar það rispast eða úr því flísast.
• Aukið verðgildi glers vegna skreytingar, slípunar eða þess háttar.

Brot

• Vátryggingin bætir tjón af völdum brots, þegar innréttingar, loftklæðningar eða aðrir hlutar sumarbústaðarins falla og brotna vegna tilfallandi bilunar.

Sótfall

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

• Sótfalls sem verður skyndilega og óvænt frá viðurkenndum kynditækjum eða eldstæðum.

Vátryggingin bætir ekki tjón:

• Vegna sóts eða reyks sem safnast hefur smám saman fyrir við notkun. 

Skyndilegur snjóþungi

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

• Skyndilegs snjóþunga sem sligað hefur þak eða veggi húseignarinnar.

Vátryggingin bætir ekki tjón:

• Sem rekja má til byggingargalla.

Óveður

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

• Óveðurs, þ.e. þegar vindhraði nær 28,5 metrum á sekúndu. Tjón á hinu vátryggða af völdum úrkomu og sandfoks samfara óveðri bætist því aðeins að vindur hafi rofið þak, glugga eða aðra hluta sumarbústaðarins.Séu ekki fáanlegar viðurkenndar upplýsingar um vindhraða á tjónsstað, þegar tjónið varð, skal hafa til hliðsjónar við ákvörðun um bótaskyldu vátryggingarinnar hvort almennt eignatjón hafi orðið á svæðinu af völdum veðurs er tjónsatburðurinn átti sér stað.

Vátryggingin bætir ekki tjón:

• Á loftnetum, fánastöngum, girðingum og gróðri.

Loftför

• Vátryggingin bætir tjón af völdum loftfara og hluta sem frá þeim falla.

Ábyrgðartrygging húseiganda

Vátryggingin bætir:

• Beint líkams- eða munatjón þriðja manns vegna skaðabótaábyrgðar vátryggðs sem fellur á hann sem eiganda sumarbústaðar sem tilgreindur er í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun vegna skaðabótaábyrgðar samkvæmt íslenskum lögum. Með munum er átt við fasteign og lausafé, þ.m.t. dýr. Vátryggingin bætir slík tjón að því leyti sem tjónþoli á ekki að bera tjónið sjálfur vegna meðsakar eða meðábyrgðar.

Vátryggingin bætir ekki:

• Tjón innan samninga, þ.e. tjón sem vátryggður ber ábyrgð á vegna vanefnda á samningi.
• Tjón sem hinir vátryggðu valda hverjir öðrum.
• Tjón sem verður vegna atvinnu vátryggðs, hvort sem um er að ræða eigin atvinnurekstur eða arðbæra vinnu í þjónustu annarra.
• Tjón á munum sem vátryggður hefur til afnota, til geymslu eða eru af öðrum orsökum í hans vörslu.
• Tjón á munum stafi það af eldsvoða, vatni vegna slökkvistarfs, reyk, sóti eða sprengingu.
• Sektir, málskostnað eða önnur útgjöld í sambandi við refsimál.
• Tjón sem verður sökum mengunar lofts, jarðar, gróðurs, sjávar eða vatns. Félagið bætir þó þess háttar tjón ef það verður rakið til eins ákveðins atburðar.
• Tjón vegna langvarandi raka eða vatnsleka.
• Tjón sem rekja má til asbests eða efnis sem inniheldur asbest að einhverju leyti.