Hleð spilara!

Húseigendatrygging íbúðarhúsnæðis

Mikilvægt er öllum húseigendum að hafa í gildi húseigendatryggingu og tekur hún til tjóna á húseignum auk þess að fela í sér ábyrgðar- og málskostnaðartryggingu.


Tryggingin bætir tjón á húseignum m.a. vegna vatns, innbrots og óveðurs.  Húseigendatrygging íbúðarhúsnæðis er í raun þríþætt þar sem hún innifelur eignatryggingu, ábyrgðartryggingu og málskostnaðartryggingu. Tryggt er fyrir brunabótamat húseignarinnar samkvæmt mati Fasteignamats ríkisins.

Húseignin og afnotamissir íbúðarhúsnæðis

Vatn, gufa og olía


Vátryggingin bætir tjón af völdum:

· Vatns, gufu og olíu, sem óvænt og skyndilega streymir úr leiðslum hússins og á upptök innan
veggja þess. Vátryggingin greiðir kostnað við uppbrot og rask sem óhjákvæmilegt er til þess að stöðva leka, svo og frágang að nýju vegna slíkra aðgerða, þannig að húseignin sé í sama og eigi verra ástandi en hún var fyrir tjónið. Bætur fyrir uppbrot og rask að öðru leyti en því að stöðva leka greiðast ekki.

· Vatns úr leiðslum í sameign eða sameiginlegum leiðslum húseignar í hlutfalli við eignarhluta vátryggðs í húseigninni.

· Vatns sem streymir óvænt og skyndilega úr vatnsrúmum eða fiskabúrum vegna bilana.

· Vatns sem flæðir úr hreinlætistækjum vegna mistaka eða óvæntra og skyndilegra bilana á tækjunum.

· Vatns sem lekur óvænt og skyndilega frá frystikistum og kæliskápum.

· Yfirborðsvatns sem orsakast af skyndilegu úrhelli eða asahláku og vatnsmagn verður svo mikið að frárennslisleiðslur ná ekki að flytja það frá. Hafa skal til hliðsjónar við ákvörðun bótaskyldu hvort almennt eignatjón hafi orðið á tjónssvæðinu af völdum úrhellis- og/eða asahláku er tjónsatburðurinn átti sér stað.

Vátryggingin bætir ekki tjón:

· Vegna utanaðkomandi vatns, svo sem grunnvatns, úrkomu, flóða, sjávarfalla eða vatns frá svölum, þökum, þakrennum eða frárennslisleiðslum þeirra.

· Vegna vatns sem þrýstist upp úr skolp- eða frárennslisleiðslum, eða ef skolpleiðslur geta skyndilega ekki flutt allt það vatn er að berst, þó með þeirri undantekningu ef leiðsla stíflast eða springur innanhúss.

· Á þeim hlut eða hlutum er tjóninu ollu, svo sem sjálf rörin eða vinnu við lagfæringu eða endurlögn þeirra.

· Vegna grunnlagna sem eru missignar, morknar eða hafa á annan hátt hrörnað af notkun eða ónógri undirbyggingu. Þó bætist beint vatnstjón sem verður á húseigninni ef slík lögn stíflast og flæðir frá henni upp fyrir botnplötu.

Frostsprungur

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

· Frostsprungna á innanhúss vatnsleiðslukerfi hins vátryggða, sem verður við það að hitakerfi hússins bilar óvænt og skyndilega.

Innbrot eða innbrotstilraun

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

· Innbrots eða innbrotstilraunar.

Gler

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

· Brots á venjulegu, sléttu og glæru rúðugleri, eingöngu þegar það brotnar eftir að það er ísett, inngreypt eða því er á annan hátt endanlega komið fyrir á þeim stað sem því var ætlað að vera á og svo lengi sem það er á sama stað.

Vátryggingin bætir ekki:

· Tjón vegna byggingarframkvæmda eða viðgerða utanhúss á því húsi sem hið vátryggða rúðugler er í, nema um sé að ræða venjulegt viðhald svo sem málun.

· Tjón vegna viðhalds eða aðgerða sem eru framkvæmdar á glerinu, ramma þess eða umhverfi.

· Tjón sem verður á rúðugleri þegar það rispast eða úr því flísast.

· Aukið verðgildi glers vegna skreytingar, slípunar eða þess háttar.

Brot

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

· Brots, þegar innréttingar, loftklæðningar eða aðrir hlutar hússins falla og brotna vegna tilfallandi bilunar.

· Brots á hreinlætistækjum, eingöngu þegar þau brotna vegna óvæntra og skyndilegra utanaðkomandi atburða eftir að þeim hefur verið komið endanlega fyrir á þeim stað sem þeim var ætlað að vera á og svo lengi sem þau eru á sama stað. Eingöngu er bætt verðmæti hreinlætistækjanna sjálfra.

· Brots á keramikhelluborði, eingöngu þegar það brotnar vegna óvænts og skyndilegs utanaðkomandi atburðar eftir að því hefur verið komið endanlega fyrir á þeim stað sem því var ætlað að vera á og svo lengi sem það er á sama stað. Eingöngu er bætt verðmæti keramikhelluborðsins sjálfs.

Vátryggingin bætir ekki tjón:

· Á hreinlætistæki vegna viðhalds eða aðgerða sem framkvæmdar eru á hreinlætistækinu.

· Á hreinlætistæki vegna þess að tækið rispast eða úr því flísast.

· Á keramikhelluborði vegna viðhalds eða aðgerða sem eru framkvæmdar á keramikhelluborðinu.

· Á keramikhelluborði vegna þess að það rispast eða úr því flísast.

Sótfall

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

· Sótfalls sem verður skyndilega og óvænt frá viðurkenndum kynditækjum eða eldstæðum.

Vátryggingin bætir ekki tjón:

· Vegna sóts eða reyks sem safnast hefur smám saman fyrir við notkun.

Skyndilegur snjóþungi

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

· Skyndilegs snjóþunga sem sligað hefur þak eða veggi húseignarinnar.

Vátryggingin bætir ekki tjón:

· Sem rekja má til byggingargalla.

Óveður

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

· Óveðurs, þ.e. þegar vindhraði nær 28,5 metrum á sekúndu. Tjón á hinu vátryggða af völdum úrkomu og sandfoks samfara óveðri bætist því aðeins að vindur hafi rofið þak, glugga eða aðra hluta hússins. Séu ekki fáanlegar viðurkenndar upplýsingar um vindhraða á tjónsstað, þegar tjónið varð, skal hafa til hliðsjónar við ákvörðun um bótaskyldu vátryggingarinnar, hvort almennt eignatjón hafi orðið á svæðinu af völdum veðurs er tjónsatburðurinn átti sér stað.

Vátryggingin bætir ekki tjón:

· Á loftnetum, fánastöngum, girðingum og gróðri.

Loftför

· Vátryggingin bætir tjón af völdum loftfara og hluta sem frá þeim falla.

Afnotamissir íbúðarhúsnæðis

· Félagið greiðir bætur þegar íbúðarhúsnæði skemmist af eldi eða bótaskyldum tjónsatburði úr vátryggingu þessari og viðgerð er svo umfangsmikil að óhjákvæmilegt er að flytja úr húsnæðinu.

· Bæturnar nema meðalleigu sambærilegs húsnæðis að stærð og ástandi, á þeim stað og tíma sem um er að ræða. Mánaðarbætur verða þó aldrei hærri en 0,8% af brunabótamati húseignarinnar.

· Bæturnar greiðast í allt að 6 mánuði frá tjónsdegi, en þó ekki lengur en sem svarar eðlilegum viðgerðartíma með tilliti til skemmda.

Ábyrgðartrygging húseiganda

Vátryggingin bætir:

· Beint líkams- eða munatjón þriðja manns vegna skaðabótaábyrgðar vátryggðs sem fellur á hann sem eiganda húseignar eða húseignarhluta sem tilgreindur er í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun vegna skaðabótaábyrgðar samkvæmt íslenskum lögum. Með munum er átt við fasteign og lausafé, þ.m.t. dýr. Vátryggingin bætir slík tjón að því leyti sem tjónþoli á ekki að bera tjónið sjálfur vegna meðsakar eða meðábyrgðar.

Vátryggingin bætir ekki:

· Tjón innan samninga, þ.e. tjón sem vátryggður ber ábyrgð á vegna vanefnda á samningi.

· Tjón sem hinir vátryggðu valda hverjir öðrum.

· Tjón sem verður vegna atvinnu vátryggðs, hvort sem um er að ræða eigin atvinnurekstur eða arðbæra vinnu í þjónustu annarra.

· Tjón á munum sem vátryggður hefur til afnota, til geymslu eða eru af öðrum orsökum í hans vörslu.

· Tjón á munum stafi það af eldsvoða, vatni vegna slökkvistarfs, reyk, sóti eða sprengingu.

· Sektir, málskostnað eða önnur útgjöld í sambandi við refsimál.

· Tjón sem verður sökum mengunar lofts, jarðar, gróðurs, sjávar eða vatns. Félagið bætir þó þess háttar tjón ef það verður rakið til eins skyndilegs atburðar.

· Tjón vegna langvarandi raka eða vatnsleka.

· Tjón sem rekja má til asbests eða efnis sem inniheldur asbest að einhverju leyti.

Málskostnaðartrygging

Vátryggingin bætir málskostnað:

· Vegna ágreinings sem snertir vátryggðan sem eiganda hinnar vátryggðu húseignar eða húseignarhluta og getur komið til úrlausnar héraðsdóms eða Hæstaréttar hér á landi. Sé um að tefla ágreining sem ekki verður vísað til dómstóla nema að undangenginni málsmeðferð á öðrum vettvangi tekur vátryggingin einungis til kostnaðar sem til er stofnað að lokinni slíkri meðferð. Vátryggingin tekur einnig til endurupptöku, þó því aðeins að endurupptaka sé heimiluð og skilyrði skv skilmála séu fyrir hendi.

Vátryggingin bætir ekki málskostnað:

· Vegna sakamála.

· Vegna ágreinings sem aðeins getur komið til úrskurðar framkvæmdavalds eða sérdómstóla.

· Sem varðar hjónaskilnað eða mál sem upp kunna að koma í sambandi við hjónaskilnað. Sama gildir um mál vegna sambúðarslita.

· Sem er í tengslum við atvinnu eða embættisrekstur vátryggðs.

· Sem varðar ábyrgð sem vátryggður hefur gengið í.

· Sem varðar fjárhagslegar ráðstafanir sem eru óvenjulegar eða óvenju umfangsmiklar fyrir einstakling eða stafa af því að einstaklingur gengur í ábyrgð fyrir annan.

· Sem varðar kröfu eða annað tilkall sem framselt hefur verið hinum vátryggða.

· Sem varðar vátryggðan sem eiganda annarrar húseignar eða húseignarhluta en getið er í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.

· Sem varðar skaðabætur eða aðrar kröfur sem varða verknað sem leiðir til gruns eða ákæru á hendur vátryggðum vegna brots sem er saknæmt.

· Sem varðar víxilmál og innheimtumál gegn vátryggðum þar sem krafa er óumdeild eða óumdeilanleg og mál sem snúast um gjaldþrota- eða nauðasamninga þar sem vátryggður er sjálfur gjaldþrota eða leitar nauðasamninga.

· Ef ekki eru fyrir hendi réttmætir hagsmunir af því að fá dóm í málinu. Slíkir hagsmunir verða t.d. ekki taldir vera fyrir hendi ef umsókn um gjafsókn hefur af þeirri ástæðu verið hafnað eða veiting gjafsóknar verið afturkölluð.