Hleð spilara!

Byggingatrygging

Byggingatrygging er eingöngu fyrir einstaklinga og hentar vel þeim sem standa í byggingaframkvæmdum. Tryggingin bætir tjón vegna eldsvoða, vatns og óveðurs ásamt því að innihalda slysa- og ábyrgðartryggingu.


Óhapp getur hent alla. Þess vegna er mikilvægt fyrir þá sem ráðast í byggingarframkvæmdir að gera ráðstafanir til þess að mæta óvæntum áföllum.

Byggingatrygging VÍS er samsett trygging og er grunnur hennar brunatrygging húss í smíðum, en til viðbótar tekur tryggingin til óveðurstjóns, tjóns af völdum hruns, glertjóns, vatnstjóns, slysa á þeim sem vinna við húsið án launa, og síðast en ekki síst er innifalin ábyrgðartrygging húseigenda.

Þegar tekin er Byggingatrygging á hús í byggingu, myndast sjálfkrafa vernd hjá Viðlagatryggingu Íslands vegna náttúruhamfara samkvæmt skilmálum Viðlagatryggingar.

Vátryggingarfjárhæðin er ákveðin í upphafi eftir fermetrafjölda og miðast við endanlegt verðmæti hússins.

Þegar byggingu hússins er lokið og búið að meta það til brunabótamats þarf að huga að öðrum tryggingum vegna hússins en það eru brunatrygging húseigna og húseigendatrygging.

Eldsvoði, elding og sprenging

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

  • Eldsvoða. Það telst ekki eldsvoði þegar hlutir sviðna eða bráðna ef eldur er ekki laus.
  • Eldingar
  • Sprengingar

Vátryggingin bætir ekki tjón vegna:

  • Skammhlaups, nema af því leiði eldsvoða eða það sé afleiðing eldsvoða.
  • Verklegra framkvæmda þegar unnið er með sprengiefni.

Sótfall

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

  • Skyndilegs og óvænts sótfalls sem verður t.d. vegna sprengingar frá kynditækjum.

Vatn

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

  • Skyndilegs og óvænts leka úr vatnsleiðslu, hitakerfi eða frárennslislögnum hússins.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Skemmdir á leiðslum eða kostnað við endurlagningu þeirra.
  • Tjón af völdum utanaðkomandi vatns, svo sem úrkomu, flóða, snjóbráðar eða vatns sem þrýstist upp úr skolp- eða frárennslislögnum.

Hrun og sig

  • Vátryggingin bætir tjón af völdum hruns eða sigs enda eigi tjónsorsökin rót sína að rekja til skyndilegs og óvænts atviks.

Óveður

  • Vátryggingin bætir tjón af völdum óveðurs þegar vindhraði nær 28,5 metrum á sekúndu. Séu ekki fáanlegar viðurkenndar upplýsingar um vindhraða á tjónsstað er tjónið varð skal hafa til hliðsjónar við ákvörðun bótaskyldu hvort almennt eignatjón hafi orðið á svæðinu af völdum veðurs er vátryggingar-atburðurinn átti sér stað. Vatnsskemmdir á hinu vátryggða samfara óveðurstjóni eru einnig bættar.

Skemmdarverk, innbrot, þjófnaður

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

  • Skemmdarverka, innbrots eða þjófnaðar á byggingarstað.

Gler

Vátryggingin bætir tjón af völdum:

  • Brots á venjulegu, sléttu og glæru rúðugleri, eingöngu þegar það brotnar eftir að það er ísett, inngreypt eða því er á annan hátt endanlega komið fyrir á þeim stað sem því var ætlað að vera á og svo lengi sem það er á sama stað.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Tjón við ísetningu.

Ábyrgðartrygging húseigenda

Vátryggingin bætir:

  • Beint líkams- eða munatjón þriðja manns vegna skaðabótaábyrgðar vátryggðs er fellur á hann samkvæmt íslenskum lögum sem eiganda húseignar eða húseignarhluta í smíðum og tilgreindur er í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.
  • Beint líkams- eða munatjón þriðja manns vegna skaðabótaábyrgðar vátryggðs sem fellur á hann samkvæmt íslenskum lögum sökum vinnuframlags hans sjálfs og fjölskyldu hans við smíði hússins, svo og annarra sem á vegum vátryggðs kunna að leggja fram vinnu við byggingu hússins, enda séu þeir ekki verktakar við bygginguna eða starfsmenn þeirra. 
Með munum er átt við fasteign og lausafé, þ.m.t. dýr. Vátryggingin bætir tjón að því leyti sem tjónþoli á ekki að bera tjónið sjálfur vegna meðsakar eða meðábyrgðar.

Vátryggingin bætir ekki:

    • Sektir né heldur málskostnað í sambandi við refsimál.
    • Tjón sem hinir vátryggðu valda hverjir öðrum, þ.e. vátryggingartaki og fjölskylda hans, enda hafi þessir aðilar sameiginlegt lögheimili, og aðrir þeir sem kunna að leggja fram vinnu við byggingu hússins, enda séu þeir ekki verktakar við bygginguna né starfsmenn verktaka, byggingastjóra eða iðnmeistara.
    • Tjón á eignum sem stafar af eldsvoða, reyk, sóti eða sprengingu.
    • Tjón á munum sem eru í eigu vátryggðs eða fjölskyldu hans, eða hafa verið fengnir þeim til afnota, umráða eða vörslu. Ekki bætist heldur tjón á munum sem vátryggður hefur selt en ekki afhent.

Slysatrygging

Félagið greiðir:

  • Bætur vegna slyss er vátryggður verður fyrir, ef það leiðir til:
    • Andláts.
    • Varanlegrar læknisfræðilegrar örorku.
    • Tímabundins missis starfsorku.
    • Tannbrots.
  • Kostnað vegna nauðsynlegra læknisvottorða í tengslum við vátryggingaratburð þegar þeirra er aflað að beiðni félagsins.

Félagið greiðir ekki bætur vegna slysa sem verða:

  • Í flugi, nema vátryggður sé farþegi í áætlunar- eða leiguflugi á vegum aðila sem hefur tilskilin leyfi hlutaðeigandi flugmálayfirvalda.
  • Í handalögmálum eða við þátttöku í refsiverðum verknaði.
  • Af völdum matar- eða drykkjareitrunar.
  • Af völdum sýkingar vegna skordýrabits eða stungu.
  • Beint eða óbeint vegna blindu, mikillar nær- eða fjarsýni, sjóndepru, heyrnardeyfðar, lömunar, bæklunar, geðveiki, flogaveiki, heilaáfalls, hjartaáfalls, sykursýki eða annarra alvarlegra sjúkdóma eða veiklunar.
  • Af völdum vélknúinna, skráningarskyldra ökutækja og leiðir til réttar vátryggðs til skaðabóta, hvort heldur er úr ábyrgðartryggingu eða slysatryggingu ökumanns og eiganda. Sama gildir eigi sá sem vátryggður er rétt til bóta samkvæmt reglum umferðarlaga um tjón af völdum óþekktra og óvátryggðra ökutækja.
  • Beint eða óbeint af völdum hryðjuverka vegna hvers konar líffræðilegra eða efnafræðilegra áhrifa og/eða eitrunar, þ.m.t. vegna sýkla og veira, eða þegar afleiðingar slyss verða meiri vegna framangreindra atriða.