Hleð spilara!
Brunatrygging húseigna
Brunatrygging húseigna er lögboðin trygging og bætir hún tjón vegna eldsvoða.
Brunatrygging húseignar er lögboðin trygging en öllum húseigendum er skylt samkvæmt lögum að vátryggja allar húseignir gegn eldsvoða, þ.m.t. íbúðarhús, gripahús og hlöður á bændabýlum og geymslur.
Samkvæmt lögum er vátryggingafélögum gert að innheimta ýmis opinber gjöld þegar þau innheimta iðgjöld vegna brunatrygginga húseigna. Þessi gjöld eru:
- Viðlagatryggingargjald
- Brunavarnargjald
- Gjald til Ofanflóðasjóðs
- Matsgjald til Fasteignaskrár Íslands
Vátryggingarfjárhæð miðast við brunabótamat húseigna. Óskir þú eftir að láta meta eða endurmeta húseign hefur þú samband við Fasteignaskrá Íslands. Ný hús skal meta eigi síðar en 4 vikum eftir að þau eru tekin í notkun og er eiganda skylt að sjá um að slíkt sé tilkynnt vátryggjanda.
Eldsvoði, elding og sprenging
Vátryggingin bætir tjón af völdum:
- Eldsvoða.
- Eldingar.
- Sprengingar í gufukatli til upphitunar húsa og tjón af völdum gassprengingar vegna eldunar- og suðutækja og gaslagna til upphitunar húsa.
Vátryggingin bætir ekki tjón:
- Vegna elds er eigi verður talinn eldsvoði, s.s. tjón á munum sem verða fyrir eldi eða hita við upphitun, suðu, þurrkun, reykingu eða þess háttar og brenna af þeirri ástæðu eða skemmast.
- Á rafmagnsvélum, lögnum eða tækjum þegar tjón orsakast af spennubreytingu, ofhitnun, skammhlaupi eða öðru hreinu rafmagnsfyrirbrigði, og spani frá rafmögnuðu óveðri, nema af því leiði eldsvoða eða sé afleiðing eldsvoða.
- Á vél eða katli sem sprengingin verður í.
Sótfall
Vátryggingin bætir tjón af völdum:
- Sótfalls sem verður skyndilega og óvænt frá viðurkenndu kynditæki, eldstæði eða blásara.
Vátryggingin bætir ekki tjón af völdum:
- Sóts eða reyks sem safnast hefur smám saman fyrir við notkun, s.s. sót frá reykháfi eða kertum.
Loftför
Vátryggingin bætir tjón af völdum:
- Loftfara og hluta sem frá þeim falla.
Slökkvi- og björgunaraðgerðir
Vátryggingin bætir tjón af völdum:
- Slökkvi- og björgunaraðgerða þegar markmið með ráðstöfununum er að forðast eða takmarka tjón sem fellur undir vátrygginguna og ráðstafanirnar teljast sérstakar og réttlætanlegar.
Vátryggingin bætir ekki:
- Óbeint tjón sem kann að leiða af bótaskyldum tjónsatburðum, s.s. rekstrartap, töf á framleiðslu eða afhendingu vöru, missi húsaleigutekna o.þ.h.
- Kostnað vegna hreinsunar úrgangs- eða eiturefna í umhverfi eða jarðvegi vegna bótaskylds tjónsatburðar.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
