Brunatrygging húseigna í smíðum
Smíðatrygging er lögboðin trygging fyrir þá sem eiga húseign í smíðum og bætir hún tjón vegna eldsvoða.
Samkvæmt lögum er skylt að brunatryggja allar húseignir í smíðum og ber eigendum að sjá til þess að tryggingin sé gild meðan á smíði hússins stendur.
Tryggingin bætir tjón af völdum eldsvoða, eldingar, sprenginga, sótfalls, loftfara og björgunar- og slökkviaðgerða.
Þegar tekin er brunatrygging á hús í smíðum, myndast sjálfkrafa vernd hjá Viðlagatryggingu Íslands vegna náttúruhamfara samkvæmt skilmálum Viðlagatryggingar.
Vátryggingartaki ákveður vátryggingarfjárhæðina fyrir húsið og skal hún vera sem næst byggingarkostnaði hússins á hverjum tíma.
Þegar hús er fullbúið skal eigandi sjá um að húseignin sé tekin í brunabótamat af Fasteignamati ríkisins. Þá fellur brunatrygging húss í smíðum niður og við tekur brunatrygging húseigna.
Eldsvoði, elding og sprenging
Vátryggingin bætir tjón af völdum:
- Eldsvoða.
- Eldingar.
- Sprengingar í gufukatli til upphitunar húsa og tjón af völdum gassprengingar vegna eldunar- og suðutækja og gaslagna til upphitunar húsa.
Vátryggingin bætir ekki tjón:
- Vegna elds er eigi verður talinn eldsvoði, s.s. tjón á munum sem verða fyrir eldi eða hita við upphitun, suðu, þurrkun, reykingu eða þess háttar og brenna af þeirri ástæðu eða skemmast.
- Á rafmagnsvélum, lögnum eða tækjum þegar tjón orsakast af spennubreytingu, ofhitnun, skammhlaupi eða öðru hreinu rafmagnsfyrirbrigði, og spani frá rafmögnuðu óveðri, nema af því leiði eldsvoða eða sé afleiðing eldsvoða.
- Á vél eða katli sem sprengingin verður í.
Sótfall
Vátryggingin bætir tjón af völdum:
- Sótfalls sem verður skyndilega og óvænt frá viðurkenndu kynditæki, eldstæði eða blásara.
Vátryggingin bætir ekki tjón af völdum:
- Sóts eða reyks sem safnast hefur smám saman fyrir við notkun, s.s. sót frá reykháfi eða kertum.
Loftför
Vátryggingin bætir tjón af völdum:
- Loftfara og hluta sem frá þeim falla.
Slökkvi- og björgunaraðgerðir
Vátryggingin bætir tjón af völdum:
- Slökkvi- og björgunaraðgerða þegar markmið með ráðstöfununum er að forðast eða takmarka tjón sem fellur undir vátrygginguna og ráðstafanirnar teljast sérstakar og réttlætanlegar.
Vátryggingin bætir ekki:
- Óbeint tjón sem kann að leiða af bótaskyldum tjónsatburðum, s.s. rekstrartap, töf á framleiðslu eða afhendingu vöru, missi húsaleigutekna o.þ.h.
- Kostnað vegna hreinsunar úrgangs- eða eiturefna í umhverfi eða jarðvegi vegna bótaskylds tjónsatburðar.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
