Hleð spilara!
Húftrygging smábáta
Húftrygging smábáta tryggir báta undir 10 rúmlestum gegn tjónum á bátnum sjálfum ásamt því að vera ábyrgðartrygging.
Tryggingin er samsett trygging úr tveimur liðum. Hún bætir annars vegar tjón á bátnum sjálfum og hins vegar innifelur þessi trygging ábyrgðartryggingu sem bætir tjón á öðru skipi vegna ásiglingar. Húftrygging báta bætir m.a. tjón vegna bruna, brotsjó, skemmdarverka eða náttúruhamfara. Þá tekur tryggingin til tjóna á bátum í uppsátri m.a. vegna bruna, náttúruhamfara, innbrots eða óveðurs.
Nauðsynlegt er að hafa slysatryggingar sjómanna fyrir menn á bátnum til að haffæri sé veitt, þannig að sú trygging fylgir nær undantekningalaust með þessari tryggingu.
Húftrygging
Bótasvið vegna algers tjóns:
- Félagið greiðir bætur fyrir algert tjón ef báturinn sekkur eða verður fyrir svo miklum skemmdum að ekki er unnt að bjarga honum eða gera við hann eða kostnaður við að bjarga honum og gera við hann er hærri en vátryggingarfjárhæðin.
Bótasvið vegna tjóns að hluta:
Vátryggingin bætir:
- Tjón á bátnum sem stafa af eldsvoða, sprengingu, strandi, ásiglingu á mannvirki eða rekald, þar með talinn ís, eða árekstri við annað fljótandi far, enda sé að minnsta kosti annað farið undir siglingastjórn.
- Tjón af völdum brotsjós ef ólag ríður yfir bátinn með þeim afleiðingum að báturinn eða hlutar hans brotna.
- Kostnað við björgun svo og eðlilegan kostnað við ráðstafanir til að varna tjóni, sbr. þó ákvæði siglingalaga um takmörkun ábyrgðar.
- Tjón sem stafar af innbroti, þjófnað eða skemmdar-verk.
- Tjón á bátnum sem verða við sjósetningu eða upptöku vegna skyndilegrar og óvæntrar óhappatilviljunar, svo og í flutningi að og frá geymslustað innan sama lögsagnarumdæmis.
- Tjón af völdum jarðskjálfta, eldgosa, aurskriða og snjóflóða.
- Tjón á bol báts úr trefjaplasti eða plastefnum þegar notaðar eru viðurkenndar aðferðir til viðgerðar. Það telst fullnaðarviðgerð þó um útlitsgalla sé að ræða.
- Tjón á bátum í uppsátri vegna bruna, snjóflóðs, aurskriðu, eldgoss, jarðskjálfta, innbrots, þjófnaðar, skemmdarverka og óveðurs. Með óveðri er átt við að vindhraði nái 28,5 metrum á sekúndu. Séu ekki fáanlegar viðurkenndar upplýsingar um vindhraða á tjónsstað er tjónið varð skal hafa til hliðsjónar við ákvörðun bótaskyldu hvort almennt eignatjón hafi orðið á svæðinu af völdum veðurs er vátryggingar-atburðurinn átti sér stað.
Vátryggingin bætir ekki:
- Tjón á vélum, skrúfubúnaði, rafkerfi, siglinga- og fjarskiptatækjum, fiskileitartækjum, handfærarúllum og öðrum búnaði bátsins nema tjónið verði rakið til orsaka samkvæmt skilmála.
- Tjón sem stafar af fúa, þreytu, tæringu, sliti eða sambærilegum orsökum.
- Tjón sem rakið verður til hönnunargalla.
- Tjón sem stafar af samslætti við báta, skip eða hafnarmannvirki.
- Óbeint tjón, svo sem aflatjón og kostnað sem stafar af töf.
Ábyrgðartrygging
Vátryggingin bætir:
- Tjón sem vátryggður bátur veldur með árekstri og tjón sem verður á annan hátt vegna mistaka við stjórnun hans, enda sé um að ræða beint líkams- eða munatjón sem vátryggður veldur með saknæmum og ólögmætum hætti.
- Kostnað við að fjarlægja flak báts þriðja aðila.
Vátryggingin bætir ekki:
- Skaðabótakröfur frá starfsmönnum eiganda eða útgerðarmanns hins vátryggða báts, né skaðabótakröfur frá eigendum afla eða annars sem báturinn flytur.
- Tjón þriðja manns vegna ábyrgðar vátryggðs á skemmdum munum eða glataðra muna sem vátryggður hefur að láni, á leigu, til geymslu, sölu, flutnings eða eru af öðrum ástæðum í vörslu hans, þar á meðal muna sem vátryggður hefur tekið í heimildarleysi.
- Sektir og önnur refsiviðurlög.
- Óbeint tjón, svo sem aflatjón og kostnað sem stafar af töf.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
