Hleð spilara!

Hagsmunatrygging fyrir íslensk fiskiskip

Hagsmunatrygging er ætluð útgerðum skipa yfir 100 brl. og tekur til hagsmuna vegna altjóns á skipi.


Tryggingin er valfrjáls og seld þeim útgerðum sem eru með skipatryggingar hjá VÍS á skipum yfir 100 rúmlestir. Hún tekur á hagsmunum útgerðar við missi á skipi í altjóni. Heimilt er að tryggja hagsmuni fyrir allt að 20% af verðmæti skips og eingöngu er greitt úr tryggingunni ef um altjón er að ræða.

Félagið greiðir bætur ef:

  • Skipið ferst eða verður fyrir svo miklum skemmdum að ekki er unnt að bjarga því eða gera við það eða kostnaður við að bjarga því og gera við það er hærri en vátryggingarfjárhæðin.
  • Skipið hefur ekki komið fram þremur mánuðum eftir að síðast spurðist til þess eða áhöfnin hefur yfirgefið skipið og það er ekki komið undir umráð vátryggðs innan þriggja mánaða frá því það var yfirgefið.
  • Skipið er hernumið eða kyrrsett af erlendu ríki og ekki látið laust innan sex mánaða. Ákvæði þetta á ekki við um tjón sem hlýst af því að skip er gert upptækt í refsimáli, kyrrsett eða selt að kröfu skuldheimtumanna.

Vátryggingin bætir ekki tjón af völdum:

  • Styrjaldar, innrásar, hernaðaraðgerða, borgarrósta, uppreisnar, uppþots, verkfalls eða svipaðra aðgerða.
  • Kjarnabreytingar, jónandi geislunar, mengunar af geislavirkum efnum, kjarnaeldsneytis eða kjarna-úrgangsefnis.