Hleð spilara!
Eigur skipverja
Tryggir eigur skipverja um borð í vátryggðu skipi.
Tryggingin bætir tjón á eigum skipverja skv. upphæðum í reglugerð nr. 224/1999 ef þær eyðileggjast við sjóslys eða bruna. Trygging þessi er eingöngu tekin á þau skip sem eru með húftryggingu hjá félaginu.
Vátryggingin bætir tjón á eigum skipverja ef þær eyðileggjast:
- Við sjóslys.
- Við bruna.
Vátryggingin bætir ekki tjón af völdum:
- Jarðskjálfta, eldgoss, skriðufalls, snjóflóðs eða annarra náttúruhamfara.
- Styrjaldar, innrásar, hernaðaraðgerða, borgarrósta, uppreisnar, uppþots, verkfalls eða svipaðra aðgerða.
- Kjarnabreytingar, jónandi geislunar, mengunar af geislavirkum efnum, kjarnaeldsneytis eða kjarna-úrgangsefnis.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
