Hleð spilara!
Aflatrygging - frystur afli
Tryggingin er æskileg öllum útgerðum með skip yfir 100 brl. og tekur til tjóna á veiddum fiski.
Tryggingin bætir tjón á afla sem ferst með skipinu. Aflatrygging tekur einnig til altjóna og hlutatjóna ef það stafar beinlínis af því að skipið strandar, sekkur, því hvolfir eða það rekst á annað skip, fasta eða fljótandi hluti. Einnig bætir hún tjón á afla vegna bilunar í frystitækjum af óviðráðanlegum orsökum. Trygging þessi er eingöngu tekin á þau skip yfir 100 brl. sem eru með húftryggingu hjá félaginu. Einnig bætir hún tjón á afla vegna bilunar í frystitækjum af óviðráðanlegum orsökum.
Vátryggingin bætir:
- Algert tjón ef afli ferst með skipinu.
- Algert tjón og hlutatjón ef þau stafa beinlínis af því að skipið strandar, sekkur, því hvolfir eða það rekst á annað skip, fasta eða fljótandi hluti.
- Brunatjón.
- Þátttöku í samtjóni, samtjónskostnaði, hliðstæðum kostnaði og björgun.
- Tjón á frystum afla sem orsakast af sjóskaða, skyndilegum olíu- eða vatnsleka úr leiðslum skipsins, leka frystivökvans eða óviðráðanlegri bilun eða stöðvun frystivéla eða frystikerfis. Undanskilin eru tjón vegna breytinga á hitastigi nema bilun eða stöðvun frystivéla vari samfellt í það minnsta 24 klukkustundir.
Vátryggingin bætir ekki tjón af völdum:
- Styrjaldar, innrásar, hernaðaraðgerða, borgarrósta, uppreisnar, uppþots, verkfalls eða svipaðra aðgerða.
- Kjarnabreytingar, jónandi geislunar, mengunar af geislavirkum efnum, kjarnaeldsneytis eða kjarnaúrgangsefnis.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
