Hleð spilara!

Starfsábyrgðartrygging verk- og tæknifræðinga

Starfsábyrgð verk- og tæknifræðinga er mikilvæg ein og sér en einnig sem viðbót við starfsábyrgðartryggingu löggiltra hönnuða.


Tryggingunni er ætlað að bæta viðskiptavinum verk- og tæknifræðinga almennt fjártjón sem tryggingartaki veldur vegna gáleysis.

Við ráðleggjum þessa tryggingu samhliða lögboðnu starfsábyrgðartryggingu hönnuða. Með því er hægt að auka verndina og draga úr hættunni á því að bætur dugi ekki fyrir tjónum.

Beiðni er forsenda tilboðs eða tryggingar.

Vátryggingin bætir:

  • Almennt fjártjón viðskiptamanns vátryggðs er leiðir af gáleysi hans í starfi því sem tilgreint er í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Kostnað er verður vegna vinnu sem inna þarf af hendi til þess að komast að raun um orsakir tjónsatviks eða bæta úr ágöllum sem leiddu til atviksins þar á meðal vinnu við endurútreikning, endurhönnun eða endurbætur á verklýsingu eða gerð áætlunar í því skyni að bæta úr tjóni.
  • Tjón sem frjáls ábyrgðartrygging atvinnurekstrar tekur til þ.e. líkamstjón eða skemmdir á munum.
  • Tjón sem fellur á vátryggðan vegna verktakastarfsemi eða smíða á hans vegum eða vegna þess að hann selur eða afhendir efni eða aðra hluti.
  • Tjón vegna þess að vátryggður hefur umsjón með eða sér um rekstur á fasteign ef sú starfsemi er ekki í tengslum við verkefni sem vátryggður tekur að sér.
  • Tjón vegna þess að vátryggður tekur sem eignaraðili þátt í byggingarframkvæmdum.
  • Tjón þegar notað er nýtt óreynt efni, ný óreynd hönnun, vinnuaðferð eða útbúnaður sem að áliti viðurkenndra sérfræðinga þótti ekki varlegt að nota þegar ákvörðun um notkun var tekin, þegar hönnun fór fram eða þegar tjón bar að höndum.
  • Tjón sem lögboðnar starfsábyrgðartryggingar taka til.
  • Sektir og önnur viðurlög sem falla á vátryggðan.
  • Tjón sem hlýst af vélknúnu ökutæki, skipi eða loftfari.
  • Kostnað við að endurnýja skjöl sem hafa glatast, mislagst eða eyðilagst.
  • Tjón vegna verkefnis sem vátryggður tekur þátt í sem samstarfsaðili nema félaginu hafi áður en verkefni hófst borist tilkynning um samstarfið, en félagið ber þó aldrei frekari ábyrgð en sem nemur hlutdeildarþátttöku vátryggðs.
  • Tjón vegna gáleysis vátryggðs við eftirlitsstörf nema hann sanni að þeim hafi verið sinnt á venjulegan og eðlilegan hátt.
  • Hvers konar afleidd tjón, einkum rekstrartjón og annað tjón, er hlýst af því að hlutur, sem skemmist eða fer forgörðum, varð ekki notaður á þeim tíma eða með þeim hætti, sem ráðgert hafði verið.
  • Tjón sem rekja má til fjárhagslegra ráðlegginga vátryggðs.
  • Tap eða tjón sem stafar beint eða óbeint, að öllu leyti eða að hluta af:
  • o Áhrifum tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þessa hvoru tveggja.
  • o Umsjón með eða ráðgjöf um áhrif tímaskráninga á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þeirra.
  • o Eftirlit, viðurkenningu, ákvörðun, staðfestingu eða áritun um aðstæður þar sem áhrif tímaskráninga á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þeirra skipta máli (þ.m.t. en þó ekki takmarkað við, störf framkvæmdastjóra, stjórnarmanna og endurskoðenda að verkefnum sínum).

Undanþága þessi á við um allar tímaskráningar.

Með "tímaskráningu" er átt við tilgreiningu tíma sem byggist á almanakskerfi þegar tilgreiningin verkar sem upplýsingar, kóti, merki eða með hvers konar öðrum hætti í búnaði, kerfi eða samblandi þessa hvoru tveggja.

Með "búnaði" er átt við hvers konar vélar, tæki, vörur og aðra áþreifanlega hluti eða safn hluta, hvort sem um er að ræða fasteign eða lausafé, þ.m.t., en þó ekki takmarkað við vélbúnað tölva, hugbúnað eða samþætt rafeindakerfi (þ.m.t. örgjörvar og kísilflögur).

Með "kerfi" er átt við hvers konar upplýsingar, fyrirmæli eða safn þeirra og hvers konar miðla fyrir upplýsingar og fyrirmæli á tölvutæku formi, á pappír eða í formi geisla, bylgna, eðlisfræðilegra áhrifa, efnaferla eða á öðru óáþreifanlegu eða áþreifanlegu formi.