Hleð spilara!

Starfsábyrgðartr. umboðsmanns eigenda vörum. og einkaleyfa

Starfsábyrgðartryggingin er mikilvæg umboðsmönnum vörumerkja og einkaleyfa og verndar þá gegn hugsanlegum fjárkröfum.


Tryggingin bætir viðskiptamanni vátryggðs almennt fjártjón hans er leiðir af gáleysi í störfum umboðsmanns eigenda vörumerkja og einkaleyfa eða þess sem ráðinn er til starfa hjá honum.

Beiðni er forsenda tryggingar og tilboðs

Vátryggingin bætir:

  • Almennt fjártjón viðskiptamanns vátryggðs er leiðir af gáleysi í störfum hans sem umboðsmanns eigenda vörumerkja og einkaleyfa eða þess sem ráðinn er til starfa hjá honum.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Tjón sem vátryggður tekur á sig ef ábyrgðin er víðtækari en almenn bótaábyrgð hans sem umboðsmanns eigenda vörumerkja og einkaleyfa.
  • Sektir og önnur viðurlög sem falla á vátryggðan.
  • Líkamstjón og skemmdir á munum.
  • Tap eða tjón sem stafar beint eða óbeint, að öllu leyti eða að hluta af:
  • Áhrifum tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þessa hvoru tveggja.
  • Umsjón með eða ráðgjöf um áhrif tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þeirra.
  • Eftirliti, viðurkenningu, ákvörðun, staðfestingu eða áritun um aðstæður þar sem áhrif tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þeirra skipta máli (þ.m.t. en þó ekki takmarkað við störf framkvæmdastjóra, stjórnarmanna og endurskoðenda að verkefnum sínum).

Undanþága þessi á við um allar tímaskráningar.

Með “tímaskráningu” er átt við tilgreiningu tíma sem byggist á almanakskerfi þegar tilgreiningin verkar sem upplýsingar, kóti, merki eða með hvers konar öðrum hætti í búnaði, kerfi eða samblandi þessa hvoru tveggja.

Með “búnaði” er átt við hvers konar vélar, tæki, vörur og aðra áþreifanlega hluti eða safn hluta, hvort sem um er að ræða fasteign eða lausafé, þ.m.t. en þó ekki takmarkað við vélbúnað tölva, hugbúnað eða samþætt rafeindakerfi (þ.m.t. örgjörvar og kísilflögur).

Með “kerfi” er átt við hvers konar upplýsingar, fyrirmæli eða safn þeirra og hvers konar miðla fyrir upplýsingar og fyrirmæli í tölvutæku formi, á pappír eða í formi geisla, bylgna, eðlisfræðilegra áhrifa, efnaferla eða á öðru óáþreifanlegu eða áþreifanlegu formi.