Hleð spilara!
Starfsábyrgðartrygging félagsmanna í félagi bókhaldsstofa
Starfsábyrgðartrygging félagsmanna í félagi bókhaldsstofa er mikilvæg til að vernda þá gegn hugsanlegum fjárkröfum.
Tryggingin bætir viðskiptavinum félagsmanna í félagi bókhaldsstofa almennt fjártjón sem leiðir af gáleysi þeirra eða starfsmanns hans í bókhaldsstörfum.
Vátryggingin gildir á Íslandi.
Beiðni er forsenda tilboðs eða tryggingar
Vátryggingin bætir:
- Almennt fjártjón viðskiptamanns vátryggðs er leiðir af gáleysi í bókhaldsstörfum hans eða þess sem ráðinn er til starfa hjá honum.
Vátryggingin bætir ekki:
- Tjón sem vátryggður tekur á sig ef ábyrgðin er víðtækari en almenn bótaábyrgð á starfssviði hans.
- Sektir og önnur viðurlög sem falla á vátryggðan.
- Líkamstjón og skemmdir á munum.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
