Hleð spilara!
Rekstrarráðgjafar
Starfsábyrgðartrygging rekstrarráðgjafa er mikilvæg öllum rekstrarráðgjöfum og verndar þá gegn fjárkröfum er kunna að falla á þá vegna starfa þeirra.
Tryggingunni er ætlað bæta viðskiptavinum rekstrarráðgjafa eða þess sem ráðinn er til starfa hjá honum almennt fjártjón sem leiðir af gáleysi í störfum hans.
Vátryggingin gildir á Íslandi.
Beiðni er forsenda tilboðs eða tryggingar.
Vátryggingin bætir:
- Almennt fjártjón viðskiptamanns vátryggðs er leiðir af gáleysi í störfum hans sem rekstrarráðgjafa á því sviði sem tilgreint er í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.
Vátryggingin bætir ekki:
- Tjón sem vátryggður tekur á sig ef ábyrgðin er víðtækari en almenn bótaábyrgð á starfssviði hans.
- Sektir og önnur viðurlög sem falla á vátryggðan.
- Líkamstjón og skemmdir á munum.
- Tap eða tjón sem stafar beint eða óbeint, að öllu leyti eða að hluta af:
- Áhrifum tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þessa hvoru tveggja.
- Umsjón með eða ráðgjöf um áhrif tímaskráninga á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þeirra.
- Eftirlit, viðurkenningu, ákvörðun, staðfestingu eða áritun um aðstæður þar sem áhrif tímaskráninga á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þeirra skipta máli (þ.m.t. en þó ekki takmarkað við, störf framkvæmdastjóra, stjórnarmanna og endurskoðenda að verkefnum sínum).
Undanþága þessi á við um allar tímaskráningar.
Með "tímaskráningu" er átt við tilgreiningu tíma sem byggist á almanakskerfi þegar tilgreiningin verkar sem upplýsingar, kóti, merki eða með hvers konar öðrum hætti í búnaði, kerfi eða samblandi þessa hvoru tveggja.
Með "búnaði" er átt við hvers konar vélar, tæki, vörur og aðra áþreifanlega hluti eða safn hluta, hvort sem um er að ræða fasteign eða lausafé, þ.m.t., en þó ekki takmarkað við vélbúnað tölva, hugbúnað eða samþætt rafeindakerfi (þ.m.t. örgjörvar og kísilflögur).
Með "kerfi" er átt við hvers konar upplýsingar, fyrirmæli eða safn þeirra og hvers konar miðla fyrir upplýsingar og fyrirmæli á tölvutæku formi, á pappír eða í formi geisla, bylgna, eðlisfræðilegra áhrifa, efnaferla eða á öðru óáþreifanlegu eða áþreifanlegu formi.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
