Hleð spilara!
Lögboðin starfsábyrgðartrygging vegna starfrækslu bílaleigu
Starfsábyrgðartryggingu bílaleigu verða allir sem starfrækja bílaleigu að hafa í gildi.
Tryggingin bætir viðskiptavinum bílaleigu almennt fjártjón vegna vanefnda á leigusamningi sem rakið verður til gáleysis bílaleigunnar eða starfsmanns hans.
Tryggingin gildir innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Beiðni er forsenda tilboðs eða tryggingar.
Vátryggingin bætir:
- Almennt fjártjón viðskiptamanns vátryggðs vegna vanefnda á leigusamningi sem rakið verður til gáleysis hans eða starfsmanna hans. Vátryggingin bætir eingöngu beint tjón.
Vátryggingin bætir ekki:
- Tjón sem vátryggður tekur á sig ef ábyrgðin er víðtækari en samkvæmt lögum um bílaleigur nr. 64/2000.
- Sektir og önnur viðurlög sem falla á vátryggðan.
- Líkamstjón og skemmdir á munum.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
