Hleð spilara!

Lögboðin starfsábyrgðartrygging löggiltra hönnuða aðal- og séruppdrátta

Allir hönnuðir sem leggja fram teikningar til byggingafulltrúa verða að hafa í gildi starfsábyrgðartryggingu.


Tryggingunni er ætlað að bæta viðskiptavini almennt fjártjón sem hann verður fyrir vegna gáleysis hönnuðar sem hefur ábyrgst teikningu sína með áritun.

Tryggingin gildir eingöngu vegna þeirra teikninga sem lagðar eru fram til byggingafulltrúa en ekki annarra starfa hönnuða. Mælt er með að tryggja þau með starfsábyrgðartryggingu verk- og tæknifræðinga eða starfsábyrgðartryggingu arkitekta .

Beiðni er forsenda tilboðs eða tryggingar.

Vátryggingin bætir:

  • Almennt fjártjón viðskiptamanns vátryggðs er leiðir af gáleysi í störfum hans sem hönnuðar og hann hefur ábyrgst með áritun á teikningu sína, sbr. 1. mgr. 47. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Tjón sem vátryggður tekur á sig ef ábyrgðin er víðtækari en almenn bótaábyrgð hans sem löggilts hönnuðar.
  • Sektir og önnur viðurlög sem falla á vátryggðan.
  • Líkamstjón og skemmdir á munum.