Hleð spilara!
Lögboðin starfsábyrgðartrygging leigumiðlara
Allir leigumiðlarar verða að hafa starfsábyrgðartryggingu leigumiðlara í gildi.
Tryggingunni er ætlað að bæta viðskiptavinum leigumiðlara almennt fjártjón sem leiðir af gáleysi leigumiðlarans í starfi. Almennt fjártjón er tjón sem hvorki tengist líkamsmeiðslum né spjöllum á munum eða eignum.
Vátryggingin gildir á Íslandi.
Beiðni er forsenda tilboðs eða tryggingar
Vátryggingin bætir:
- Almennt fjártjón viðskiptamanns vátryggðs er leiðir af gáleysi í störfum hans sem leigumiðlara.
Vátryggingin bætir ekki:
- Tjón sem vátryggður tekur á sig ef ábyrgðin er víðtækari en almenn bótaábyrgð hans sem leigu-miðlara.
- Sektir og önnur viðurlög sem falla á vátryggðan.
- Líkamstjón og skemmdir á munum.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
