Hleð spilara!

Lögboðin starfsábyrgðartrygging innheimtuaðila

Allir innheimtuaðilar sem stunda innheimtu á grundvelli innheimtuleyfis verða að hafa starfsábyrgðartryggingu í gildi.


Tryggingunni er ætlað að bæta kröfuhöfum og skuldurum almennt fjártjón sem þeir kunna að verða fyrir vegna gáleysis innheimtuaðila eða starfsmanna hans.

Vátryggingin gildir á Íslandi.

Beiðni er forsenda tilboðs eða tryggingar.

Vátryggingin bætir:

  • Almennt fjártjón kröfuhafa og skuldara er leiðir af gáleysi í störfum vátryggðs sem innheimtuaðila eða þess sem ráðinn er til starfa hjá honum.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Tjón sem vátryggður tekur á sig ef ábyrgðin er víðtækari en almenn bótaábyrgð hans sem innheimtuaðila.
  • Sektir og önnur viðurlög sem falla á vátryggðan.
  • Líkamstjón og skemmdir á munum.