Hleð spilara!

Lögboðin starfsábyrgðartrygging græðara

Starfsábyrgðartrygging græðara er eingöngu tekin af skráðum græðurum á því fagsviði sem skráningin nær til.


Starfsábyrgðartryggingu græðara er ætlað að bæta tjón skjólstæðings vátryggðs sem leiðir af gáleysi í störfum græðarans á því fagsviði sem skráning hans nær til.

Fagsviðin eru þessi:

  • Hómópatar
  • Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðaraðilar
  • Höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnarar
  • Svæða- og viðbragðsfræðingar
  • Heilsunuddarar
  • Shiatshuþerapístar
  • Lithimnufræðingar
  • Ilmolíufræðingar.
Beiðni er forsenda tilboðs eða tryggingar.

Vátryggingin bætir:

  • Tjón skjólstæðings vátryggðs er leiðir af gáleysi í störfum græðarans á því fagsviði sem skráning hans nær til.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Tjón sem vátryggður tekur á sig ef ábyrgðin er víðtækari en almenn bótaábyrgð hans sem græðara.
  • Sektir og önnur viðurlög sem falla á vátryggðan.