Hleð spilara!

Lögboðin starfsábyrgðartr. fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala

Allir sem starfa við fasteigna-, fyrirtækja-, og skipasölu verða að hafa gilda starfsábyrgðartryggingu.


Tryggingin bætir viðskiptavini fasteigna- og skipasalans almennt fjártjón sem hann verður fyrir vegna gáleysis löggilts fasteignasala. Almennt fjártjón er tjón sem hvorki tengist líkamsmeiðslum né spjöllum á munum eða eignum.

Vátryggingin gildir innan Evrópska efnahagssvæðisins.

Beiðni er forsenda tilboðs eða tryggingar.

Vátryggingin bætir:

  • Almennt fjártjón viðskiptamanns vátryggðs er leiðir af gáleysi í störfum hans sem fasteignasala eða þess sem ráðinn er til starfa hjá honum. Með orðinu fasteignasali er átt við þann sem fengið hefur löggildingu til að hafa milligöngu um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa.
  • Tjón viðskiptamanns vátryggðs sem felst í því að vátryggður, sem fengið hefur greitt fyrir milligöngu um fasteignaviðskipti, hættir störfum og á ólokið frágangi samninga, skjala eða uppgjöri vegna viðskiptanna sem hann hefur fengið greitt fyrir, sbr. 3. málsl. 27. gr. laga nr. 99/2004. Tjón viðskiptamanns í slíku tilviki takmarkast við þann kostnað sem hann hefur greitt vegna óunninna starfa þegar vátryggður lætur af störfum.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Tjón sem vátryggður tekur á sig ef ábyrgðin er víðtækari en almenn bótaábyrgð hans sem fasteignasala.
  • Sektir og önnur viðurlög sem falla á vátryggðan.
  • Líkamstjón og skemmdir á munum.