Hleð spilara!

Lögboðin starfsábyrgðartrygging byggingastjóra

Byggingastjóratryggingu verða allir byggingastjórar að hafa í gildi. Tryggingin er tekin á hvert verk.


Tryggingunni er ætlað að bæta viðskiptavini byggingastjóra það fjártjón sem hann verður fyrir vegna þess að ekki er byggt í samræmi við fyrirliggjandi teikningar eða lög og reglugerðir.

Ábyrgð byggingastjóra á þeim verkum sem hann er skráður á gildir í fimm ár eftir lokaúttekt. Byggingastjóratrygging er tekin á hvert verk sem byggingastjórinn er skráður á.

Beiðni er forsenda tilboðs eða tryggingar.

Vátryggingin bætir:

  • Almennt fjártjón viðskiptamanns vátryggðs sem rakið verður til þess að ekki hefur verið byggt í samræmi við samþykkta uppdrætti, lög og reglugerðir, enda hafi vátryggður með undirritun sinni staðfest ábyrgð sína á hlutaðeigandi mannvirki fyrir byggingarfulltrúa og tjónið falli undir þá ábyrgð að lögum.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Tjón sem vátryggður tekur á sig ef ábyrgðin er víðtækari en almenn bótaábyrgð hans sem byggingarstjóra.
  • Sektir og önnur viðurlög sem falla á vátryggðan.
  • Líkamstjón og skemmdir á munum.