Hleð spilara!
Lögboðin starfsábyrgðartrygging bifreiðasala notaðra ökutækja
Lögboðin starfsábyrgðartrygging bifreiðasala notaðra ökutækja er trygging sem allir bifreiðasalar sem falla undir þá skilgreiningu verða að hafa.
Tryggingunni er ætlað að bæta viðskiptamanni bifreiðasalans almennt fjártjón sem verður vegna gáleysis hans eða starfsmanns hans. Almennt fjártjón er tjón sem hvorki tengist líkamsmeiðslum né spjöllum á munum eða eignum.
Vátryggingin gildir innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Beiðni er forsenda tilboðs eða tryggingar.
Vátryggingin bætir:
- Almennt fjártjón viðskiptamanns vátryggðs er leiðir af gáleysi í störfum hans sem bifreiðasala eða þess sem ráðinn er til starfa hjá honum.
Vátryggingin bætir ekki:
- Tjón sem vátryggður tekur á sig ef ábyrgðin er víðtækari en almenn bótaábyrgð hans sem bifreiðasala.
- Sektir og önnur viðurlög sem falla á vátryggðan.
- Líkamstjón og skemmdir á munum.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
