Hleð spilara!
Lögboðin sjúklingatrygging
Allar sjálfstætt starfandi heilbrigðisstéttir og heilbrigðisstofnanir verða að hafa Sjúklingatryggingu í gildi.
Tryggingunni er ætlað að bæta sjúklingum líkamlegt og geðrænt tjón er þeir verða fyrir, ef rekja má það til læknisverks sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanns.
Vátryggingin gildir á Íslandi.
Beiðni er forsenda tilboðs eða tryggingar.
Vátryggingin bætir:
- Líkamlegt eða geðrænt tjón sjúklings vátryggðs sem hann ber bótaábyrgð á samkvæmt lögum um sjúklingatryggingu nr. 111/2000. Látist sjúklingur tekur vátryggingin til bótaábyrgðar vátryggðs samkvæmt sömu lögum vegna missis framfæranda.
Vátryggingin bætir ekki:
- Tjón sem vátryggður tekur á sig ef ábyrgðin er víðtækari en almenn bótaábyrgð hans samkvæmt lögum um sjúklingatryggingu nr. 111/2000.
- Sektir og önnur viðurlög sem falla á vátryggðan.
- Líkamstjón eða geðrænt tjón á öðrum en sjúklingi sjálfum.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
