Hleð spilara!
Endurskoðendur
Allir löggiltir endurskoðendur verða að hafa starfsábyrgðartryggingu endurskoðenda í gildi.
Tryggingin er lögbundin og allir löggiltir endurskoðendur verða að hafa hana í gildi. Tryggingunni er ætlað að bæta viðskiptavinum löggilts endurskoðanda almennt fjártjón sem leiðir af gáleysi endurskoðandans eða starfsmanns hans.
Almennt fjártjón er tjón sem hvorki tengist líkamsmeiðslum né spjöllum á munum eða eignum.
Vátryggingin gildir innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Beiðni er forsenda tilboðs eða tryggingar.
Vátryggingin bætir:
- Almennt fjártjón viðskiptamanns vátryggðs er leiðir af gáleysi í störfum hans sem löggilts endurskoðanda eða þess sem ráðinn er til starfa hjá honum.
Vátryggingin bætir ekki:
- Tjón sem vátryggður tekur á sig ef ábyrgðin er víðtækari en almenn bótaábyrgð hans sem endurskoðanda.
- Sektir og önnur viðurlög sem falla á vátryggðan.
- Líkamstjón og skemmdir á munum.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
