Hleð spilara!

Tannlæknar

Ábyrgðartrygging tannlækna er mikilvæg öllum tannlæknum og verndar þá gegn fjárkröfum er kunna að falla á þá vegna starfa þeirra.


Tryggingin tekur til beinna likams- eða munatjóna sjúklings eða þriðja aðila vegna skaðabótaábyrgðar vátryggðs tannlæknis og fellur á hann samkvæmt íslenskum lögum.

Vátryggingin bætir:

  • Beint líkams- eða munatjón sjúklings eða þriðja manns vegna skaðabótaábyrgðar vátryggðs sem fellur á hann samkvæmt íslenskum lögum:
    • Vegna starfsemi þeirrar sem getið er í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.
    • Sem eiganda eða notanda húss eða fasteignar sem notuð er við tilgreinda starfsemi.

Með munum er átt við fasteign og lausafé, þ.m.t. dýr.  Vátryggingin bætir tjón að því leyti sem tjónþoli á ekki að bera tjónið sjálfur vegna meðsakar eða meðábyrgðar.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Tjón sem vátryggður tekur á sig ef ábyrgðin er víðtækari en almenn bótaábyrgð hans sem tannlæknis.
  • Sektir og önnur viðurlög sem falla á vátryggðan.
  • Tjón vegna skemmda á munum eða glötunar muna sem:
    • Vátryggður á einn eða með öðrum.
    • Vátryggður hefur að láni, á leigu, til geymslu, sölu, flutnings eða eru af öðrum ástæðum í vörslu hans, þar á meðal muna sem vátryggður hefur tekið í heimildarleysi.
    • Verður af völdum eldsvoða.

 

  • Tjón vegna tannlæknismeðferðar sem:
    • Fellur utan hefðbundins starfssviðs vátryggðs.
    • Vátryggður hefur ekki réttindi til að framkvæma samkvæmt lögum eða heimildum stjórnvalda.
    • Verður vegna þess að meðferðin, þ.m.t. lyfjagjöf, hafi ekki þau áhrif er að var stefnt, hafi orðið dýrari en hliðstæð meðferð, reynst ónauðsynleg eða árangurslaus.
  • Tjón sem verða vegna starfa sem unnin eru á vegum heilbrigðisstofnunar nema unnið sé án endurgjalds frá stofnuninni og ábyrgðin hvíli ekki á hlutaðeigandi stofnun samkvæmt gildandi réttarreglum um atvinnurekandaábyrgð.
  • Tjón vegna skemmda á erfðaefnum sjúklings.
  • Tjón vegna tilrauna með lyf eða vegna klínískra tilrauna.
  • Tjón vegna notkunar á geislavirkum efnum eða vegna annarra aðferða til tannlæknismeðferðar í rannsóknartilgangi.
  • Tjón sem leiðir af skaðsemisábyrgð er fellur á vátryggðan.
  • Tjón sem rekja má til asbests eða efnis sem inniheldur asbest að einhverju leyti.
  • Tjón sem leiðir af skaðabótaábyrgð er fellur á vátryggðan sem eiganda eða notanda skráningarskylds ökutækis, loftfars, skips, báts eða annars farartækis.
  • Tjón vegna byggingaframkvæmda á fasteign sem vátryggður á eða notar.
  • Endurkröfu frá almannatryggingum.
  • Tjón sem rakið verður til mengunar lofts, jarðar, gróðurs, vatns eða sjávar.  Félagið greiðir þó bætur vegna slíks tjóns ef það verður rakið til eins skyndilegs atburðar.
  • Tap eða tjón sem stafar beint eða óbeint, að öllu leyti eða að hluta af:
    • Áhrifum tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þessa hvoru tveggja.

    • Umsjón með eða ráðgjöf um áhrif tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þeirra.

    • Eftirliti, viðurkenningu, ákvörðun, staðfestingu eða áritun um aðstæður þar sem áhrif tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þeirra skipta máli (þ.m.t. en þó ekki takmarkað við störf framkvæmdastjóra, stjórnarmanna og endurskoðenda að verkefnum sínum).

 

Undanþága þessi á við um allar tímaskráningar.

 

Með “tímaskráningu” er átt við tilgreiningu tíma sem byggist á almanakskerfi þegar tilgreiningin verkar sem upplýsingar, kóti, merki eða með hvers konar öðrum hætti í búnaði, kerfi eða samblandi þessa hvoru tveggja.

 

Með “búnaði” er átt við hvers konar vélar, tæki, vörur og aðra áþreifanlega hluti eða safn hluta, hvort sem um er að ræða fasteign eða lausafé, þ.m.t. en þó ekki takmarkað við vélbúnað tölva, hugbúnað eða samþætt rafeindakerfi (þ.m.t. örgjörvar og kísilflögur).

 

Með “kerfi” er átt við hvers konar upplýsingar, fyrirmæli eða safn þeirra og hvers konar miðla fyrir upplýsingar og fyrirmæli í tölvutæku formi, á pappír eða í formi geisla, bylgna, eðlisfræðilegra áhrifa, efnaferla eða á öðru óáþreifanlegu eða áþreifanlegu formi.