Hleð spilara!

Heilbrigðisstarfsmenn

Ábyrgðartrygging sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanna er mikilvæg öllum starfsmönnum innan þeirra heilbrigðisstétta sem njóta lögverndaðs starfsheitis. Tryggingin verndar þá gegn fjárkröfum er kunna að falla á þá vegna starfa þeirra.


Tryggingin tekur til beinna likams- eða munatjóna sjúklings/skjólstæðings eða þriðja aðila vegna skaðabótaábyrgðar vátryggðs sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfmanns og fellur á hann samkvæmt íslenskum lögum.

Vátryggingin bætir:

3      

  • Beint líkams- eða munatjón sjúklings/skjólstæðings eða þriðja manns vegna skaðabótaábyrgðar vátryggðs sem fellur á hann samkvæmt íslenskum lögum:

    • Vegna starfsemi þeirrar sem getið er í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.

    • Sem eiganda eða notanda húss eða fasteignar sem notuð er við tilgreinda starfsemi.

  • Með munum er átt við fasteign og lausafé, þ.m.t. dýr.  Vátryggingin bætir tjón að því leyti sem tjónþoli á ekki að bera tjónið sjálfur vegna meðsakar eða meðábyrgðar.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Tjón sem vátryggður tekur á sig ef ábyrgðin er víðtækari en almenn bótaábyrgð hans sem heilbrigðisstarfsmanns á því sviði sem vátryggingin tekur til.

  • Sektir og önnur viðurlög sem falla á vátryggðan.

  • Tjón vegna skemmda á munum eða glötunar muna sem:

    • Vátryggður á einn eða með öðrum.

    • Vátryggður hefur að láni, á leigu, til geymslu, sölu, flutnings eða eru af öðrum ástæðum í vörslu hans, þar á meðal muna sem vátryggður hefur tekið í heimildarleysi.

    • Verður af völdum eldsvoða.

  • Tjón vegna meðferðar sem:

    • Fellur utan hefðbundins starfssviðs vátryggðs.

    • Vátryggður hefur ekki réttindi til að framkvæma samkvæmt lögum eða heimildum stjórnvalda.

    • Verður vegna þess að meðferðin, þ.m.t. lyfjagjöf, hafi ekki þau áhrif er að var stefnt, hafi orðið dýrari en hliðstæð meðferð, reynst ónauðsynleg eða árangurslaus.

  • Tjón sem verða vegna starfa sem unnin eru á vegum heilbrigðisstofnunar nema unnið sé án endurgjalds frá stofnuninni og ábyrgðin hvíli ekki á hlutaðeigandi stofnun samkvæmt gildandi réttarreglum um atvinnurekandaábyrgð.

  • Tjón vegna skemmda á erfðaefnum sjúklings.

  • Tjón vegna tilrauna með lyf eða vegna klínískra tilrauna.

  • Tjón sem leiðir af skaðsemisábyrgð er fellur á vátryggðan.

  • Tjón sem rekja má til asbests eða efnis sem inniheldur asbest að einhverju leyti.

  • Tjón sem leiðir af skaðabótaábyrgð er fellur á vátryggðan sem eiganda eða notanda skráningarskylds ökutækis, loftfars, skips, báts eða annars farartækis.

  • Tjón vegna byggingaframkvæmda á fasteign sem vátryggður á eða notar.

  • Endurkröfu frá almannatryggingum.

  • Tjón sem rakið verður til mengunar lofts, jarðar, gróðurs, vatns eða sjávar.  Félagið greiðir þó bætur vegna slíks tjóns ef það verður rakið til eins skyndilegs atburðar.

  • Tap eða tjón sem stafar beint eða óbeint, að öllu leyti eða að hluta af:

Áhrifum tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þessa hvoru tveggja.

Umsjón með eða ráðgjöf um áhrif tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þeirra.

Eftirliti, viðurkenningu, ákvörðun, staðfestingu eða áritun um aðstæður þar sem áhrif tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þeirra skipta máli (þ.m.t. en þó ekki takmarkað við störf framkvæmdastjóra, stjórnarmanna og endurskoðenda að verkefnum sínum).

Undanþága þessi á við um allar tímaskráningar.

Með “tímaskráningu” er átt við tilgreiningu tíma sem byggist á almanakskerfi þegar tilgreiningin verkar sem upplýsingar, kóti, merki eða með hvers konar öðrum hætti í búnaði, kerfi eða samblandi þessa hvoru tveggja.