Hleð spilara!

Ábyrgðartrygginga ferðaheildsala og ferðasmásala

Ábyrgðartrygging ferðaheildsala og ferðasmásala er nauðsynleg þeim sem selja pakkaferðir.


Tryggingin tekur til tjóns sem kaupandi ferðar verður fyrir þegar hann ferðast og hefur gert samning um alferð. Hún er tekin sem viðauki við ábyrgðartryggingu atvinnurekstrar.

Dæmi um alferð: Flugferð og hótel, flug og bíll, flug og sumarhús, rútuferð og gisting, hestaferð og gisting, vélsleðaferð og rútuferð.

Vátryggingin bætir:

  • Tjón er leiðir af bótaábyrgð og fellur á vátryggðan samkvæmt lögum um alferðir nr. 80/1994 vegna slyss á mönnum eða skemmda á munum af völdum ófullnægjandi alferðar sem vátryggður hefur skipulagt og/eða selt. Vátryggingin er viðauki við ábyrgðartryggingu atvinnurekstrar vátryggðs og nær eingöngu til atvika sem falla utan gildissviðs þeirrar vátryggingar.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Tjón sem vátryggður tekur á sig ef ábyrgðin er víðtækari en bótaábyrgð hans vegna slyss á mönnum eða skemmda á munum af völdum ófullnægjandi alferðar.
  • Sektir og önnur viðurlög sem falla á vátryggðan.
  • Skemmdir á farangri farkaupa á meðan hann er í vörslu flutningsaðila.
  • Sérstakar refsikenndar skaðabætur (punitive damages).
  • Tjón sem hið opinbera greiðir að einhverju leyti.