Ábyrgðartryggingar
Ábyrgðartryggingar eru mikilvægar atvinnurekendum vegna þeirrar skaðabótaábyrgðar gagnvart þriðja aðila sem á þá kann að falla vegna mistaka við framkvæmd þess starfs eða þjónustu sem vátryggð er.
Ábyrgðartryggingar skiptast í ábyrgðartryggingar atvinnurekstrar og starfsábyrgðartryggingar. Starfsábyrgðartryggingar eru sniðnar að löggildum starfsstéttum og eru ýmist lögboðnar eða valfrjálsar.
ValfrjálsarNokkrum starfsstéttum er ekki skylt að vera með starfsábyrgðartryggingu í gildi samkvæmt íslenskum lögum en við ráðleggjum þó öllum þessum starfsstéttum að vera með slíkar tryggingar.Meira |
AtvinnureksturÁbyrgðartrygging atvinnurekstrar er mikilvæg öllum rekstri og alltaf ráðlögð þeim sem stunda hverskonar fyrirtækjarekstur. Meira | SkaðsemisábyrgðSkaðsemisábyrgðartrygging er mikilvæg öllum þeim sem selja, dreifa og/eða framleiða hverskonar vöru.Meira |
ÚtgerðarmennÁbyrgðartrygging útgerðarmanna er vernd gegn skaðabótakröfum sem kunna að falla á útgerðina.Meira | |
Ferðaheild- og ferðasmásalarÁbyrgðartrygging ferðaheildsala og ferðasmásala er nauðsynleg þeim sem selja pakkaferðir.Meira | |
TannlæknarÁbyrgðartrygging tannlækna er mikilvæg öllum tannlæknum og verndar þá gegn fjárkröfum er kunna að falla á þá vegna starfa þeirra.Meira | HeilbrigðisstarfsmennÁbyrgðartrygging sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanna er mikilvæg öllum starfsmönnum innan þeirra heilbrigðisstétta sem njóta lögverndaðs starfsheitis. Tryggingin verndar þá gegn fjárkröfum er kunna að falla á þá vegna starfa þeirra.Meira |
SjúklingatryggingAllar sjálfstætt starfandi heilbrigðisstéttir og heilbrigðisstofnanir verða að hafa Sjúklingatryggingu í gildi.Meira | ByggingastjórarByggingastjóratryggingu verða allir byggingastjórar að hafa í gildi. Tryggingin er tekin á hvert verk.Meira |
Löggiltir hönnuðirAllir hönnuðir sem leggja fram teikningar til byggingafulltrúa verða að hafa í gildi starfsábyrgðartryggingu.Meira | |
Fasteigna-og skipasalarAllir sem starfa við fasteigna-, fyrirtækja-, og skipasölu verða að hafa gilda starfsábyrgðartryggingu.Meira | BílaleigurStarfsábyrgðartryggingu bílaleigu verða allir sem starfrækja bílaleigu að hafa í gildi.Meira |
Sala notaðra ökutækjaLögboðin starfsábyrgðartrygging bifreiðasala notaðra ökutækja er trygging sem allir bifreiðasalar sem falla undir þá skilgreiningu verða að hafa.Meira | LeigumiðlararAllir leigumiðlarar verða að hafa starfsábyrgðartryggingu leigumiðlara í gildi. Meira |
InnheimtuaðilarAllir innheimtuaðilar sem stunda innheimtu á grundvelli innheimtuleyfis verða að hafa starfsábyrgðartryggingu í gildi.Meira | |
Farsalar og flutningsaðilarEr fyrir öll íslensk skip sem flytja farþega í atvinnuskyni, á sjó, ám eða vötnum án tillits til stærðarMeira | VerðbréfamiðlararAllir verðbréfamiðlarar verða að hafa starfsábyrgðartryggingu verðbréfamiðlana í gildi. Meira |
EndurskoðendurAllir löggiltir endurskoðendur verða að hafa starfsábyrgðartryggingu endurskoðenda í gildi. Meira |
Verk- og tæknifræðingarStarfsábyrgð verk- og tæknifræðinga er mikilvæg ein og sér en einnig sem viðbót við starfsábyrgðartryggingu löggiltra hönnuða.Meira | ArkitektarStarfsábyrgðartrygging arkitekta er mikilvæg öllum arkitektum og verndar þá gegn fjárkröfum er kunna að falla á þá vegna starfa þeirra.Meira |
Viðurkenndir bókararStarfsábyrgðartrygging er mikilvæg fyrir félagsmenn í félagi viðurkenndra bókara og verndar þá gegn hugsanlegum fjárkröfum er kunna að falla á þá.Meira | Félag bókhaldsstofaStarfsábyrgðartrygging félagsmanna í félagi bókhaldsstofa er mikilvæg til að vernda þá gegn hugsanlegum fjárkröfum.Meira |
UmboðsmennStarfsábyrgðartryggingin er mikilvæg umboðsmönnum vörumerkja og einkaleyfa og verndar þá gegn hugsanlegum fjárkröfum. Meira | RekstrarráðgjafarStarfsábyrgðartrygging rekstrarráðgjafa er mikilvæg öllum rekstrarráðgjöfum og verndar þá gegn fjárkröfum er kunna að falla á þá vegna starfa þeirra.Meira |
Dæmi um tjón sem voru bætt
Ljósleiðari í sundur
Síðla árs 2008 var jarðverktaki að vinna við mokstur frá ljósleiðara. Þá gerist það að grjót fer undir skóflu beltavélarinnar sem verður þess valdandi að strengurinn fer í sundur. Verktakinn var með í gildi ábyrgðartryggingu atvinnurekstrar ásamt tryggingu vegna vinnuvélastjórnar sem bætti þetta tjón.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
