Hleð spilara!

Vinnuslys

Hagnýtar upplýsingar um viðbrögð fyrir þá sem þurfa að nýta sér Slysa- eða sjúkdómatryggingu vegna vinnuslyss.


Verði slys á vinnustað ber vinnuveitanda að tilkynna það lögreglu og Vinnueftirliti ríkisins svo fljótt sem unnt er og eigi síðar en innan sólarhrings.

Vinnueftirlitið framkvæmir rannsókn á orsökum slyss í þeim tilgangi að stuðla að því, að komið sé í veg fyrir slys á vinnustöðum.

Vinnuveitanda ber einnig að tilkynna VÍS um slys á þar til gerðum eyðublöðum eins fljótt og hægt er.

Mikilvægt er að raska ekki slysavettvangi til að hægt sé að rannsaka nákvæmlega orsakir slyss.

Mikilvægt að vanda skýrslugerð

Þegar um slys er að ræða er mjög mikilvægt að vanda sérstaklega til skýrslugerðar. Svara ber af kostgæfni öllum þeim spurningum sem á eyðublaðinu eru. Nákvæm tjónstilkynning leiðir til þess að mál eru afgreidd með skjótari hætti en ella. Það er hinn vátryggði sem fyllir út tjónstilkynningu en það þarf ekki endilega að vera vátryggingartaki. Ef barn vátryggingartaka slasast og fellur undir vátryggingu hans er nægilegt að vátryggingartaki sendi inn tilkynningu.

Hægt er að senda undirritaða tjónstilkynningu í pósti beint til tjónadeildar VÍS í Ármúla 3, 108 Reykjavík, en einnig er hægt að skila henni inn á næstu þjónustuskrifstofu félagsins.

Vinnuveitanda er skylt að kaupa slysatryggingu fyrir launþega sína samkvæmt kjarasamningi og ef það er ekki gert ber honum samt skylda til að standa skil á þeim bótum sem kjarasamningur kveður á um. Verði vinnuslys er mikilvægt að kanna tryggingarvernd þess kjarasamnings sem gildir fyrir viðkomandi launþega.

Slysabætur

Almennur launþegi á rétt á slysabótum úr slysatryggingu launþega ef hann verður fyrir slysi í vinnu en sumar gilda einnig í frítíma. Samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 117/1993 eru launþegar sem starfa hér á landi slysatryggðir þegar þeir eru á vinnustað á þeim tíma sem þeim er ætlað að vera að störfum og á beinni leið til og frá vinnu. Tryggingastofnun ríkisins greiðir bætur samkvæmt almannatryggingalögum.

Slysatrygging launþega greiðir yfirleitt bætur vegna tímabundins missis starfsorku, varanlegrar örorku og andláts en kjarasamningar kveða nánar á um það.

Atvinnurekandi getur einnig átt rétt á bótum úr slysatryggingu launþega ef laun eru greidd til slasaðs launþega á meðan hann er óvinnufær. Hins vegar á atvinnurekendi ekki rétt á dagpeningum úr almennri slysatryggingu sem hann kaupir til handa launþegum sínum.