Hleð spilara!

Skipatjón

Hagnýtar upplýsingar um viðbrögð fyrir þá sem hafa orðið fyrir skipatjóni.


Þegar vátryggingartaki fær vitneskju um tjón, eða að líkur séu á að tjón hafi orðið, er nauðsynlegt að ganga þannig frá málunum að ekki hljótist meira tjón en þegar hefur orðið. Það ber síðan að tilkynna VÍS um tjónið við fyrsta mögulegt tækifæri. Ef um saknæman atburð er að ræða, s.s. innbrot eða skemmdaverk ber að tilkynna atburð til lögreglu. Einnig ber að tilkynna lögreglu um málið ef um ásiglingu er að ræða.

VÍS notast við Könnun ehf, sem skoðunaraðila, í öllum báta- og skipatjónum. Þegar tjón hefur verið tilkynnt er fulltrúi Könnunar sendur á vettvang til að skoða og meta tjón. Á grundvelli þeirrar skoðunar og mats er bótaskylda ákveðin.

Húftrygging er skaðatrygging og fer bótauppgjör samkvæmt því.

Húftrygging í báta- og skipatryggingum bætir tjón á bát eða skipi vegna skyndilegs utanaðkomandi atburðar. Hér getur verið um að ræða tjón ef bátur sekkur, tjón vegna brotsjávar, innbrots eða eldsvoða og ásiglingar á mannvirki eða rekald. Það fer síðan eftir stærð og gerð báts eða skips hversu víðtækir skilmálar húftryggingar eru.