Hleð spilara!

Umgengni á vinnustað

Fyrirmyndar umgengni á vinnustað kemur í veg fyrir áhættur í vinnuumhverfinu og stuðlar að því að starfsemin fari fram á réttan og öruggan hátt.


Fyrirmyndar umgengni á vinnustað getur komið í veg fyrir ákveðnar áhættur og hjálpað til við að starfsemin fari fram á réttan og öruggan hátt. Slæm umgengni á vinnustað getur aftur á móti stuðlað að tjónum á munum og slysum á fólki. Ef slæm umgengni og ruslsöfnun er sýnilegur hluti á vinnustaðnum þá gefur það til kynna að heilsa starfsmanna og öryggismál eru ekki ofarlega á forgangslista.

Góð umgengni á vinnustað er ekki einungis spurning um að allt sé þrifalegt heldur einnig:

  • Gott skipulag á vinnusvæði.
  • Reglulega tiltekt í lok vinnudags.
  • Gönguleiðir óhindraðar. Gólf og vinnusvæði eru laus við bleytu og hluti sem að starfsfólk getur runnið til í eða hrasað um.
  • Allur brennanlegur úrgangur eins og pappír eða eldfim efni eru fjarlægð.
  • Eiturefni og eldfim efni eru geymd í lokuðum skápum eða á öruggum stað.

Árangursrík umgengni er hluti af daglegri starfsemi fyrirtækja en ekki eitthvað sem er gert annað slagið og þá oft í kjölfar næstum því óhapps eða slyss. Reglubundin tiltekt leiðir til fækkunar tjóna og slysa og þ.a.l. til lækkunar á rekstarkostnaði.

Hver er ávinningurinn af góðri umgengni á vinnustað?

  • Kemur í veg óþarfa ruslsöfnun sem hætta getur myndast af.
  • Minnkar líkur á brunahættu.
  • Lágmarkar líkur á að starfsmenn verði útsettir fyrir hættulegum efnum.
  • Leiðir til betra viðhalds og eftirlits með tækjum og tólum.
  • Betri nýting á framleiðsluefnum og birgðum.
  • Vinnusvæði fyrir fyrirtækjastarfsemi eru betur nýtt.
  • Bætir heilsu starfsmanna og starfsanda á vinnustað.
  • Hagkvæmnari rekstur.