Slökkvitæki
Til þess að slökkvitæki komi að gagni, þurfa þau að vera ætluð til þess að slökkva eld af þeirri gerð sem búast má við að komi upp.
Velja þarf tæki af réttri stærð, nægilega mörg til að ráða við eldinn og setja þau á rétta staði. Tækin þurfa reglulegt viðhald og eftirlit og þurfa að vera aðgengileg og rækilega merkt.Þjálfun
Handslökkvitæki koma því aðeins að gagni að menn kunni að nota þau. Þess vegna þarf reglulega að kenna starfsmönnum og þjálfa þá í notkun handslökkvitækja. Til dæmis gefst tækifæri til þjálfunar þegar tækin eru tæmd vegna þrýstiprófunar.
Viðhald og eftirlit handslökkvitækja
Brunamálastofnun ríkisins hefur gefið út „Reglur um eftirlit og viðhald handslökkvitækja“. Samkvæmt þeim ber eiganda eða umráðamanni að skoða handslökkvitækin mánaðarlega. Auk þess skal viðurkenndur eftirlitsaðili yfirfara og prófa tækin árlega.
Leiðbeiningar frá Brunamálastofnun í heild sinni: Leiðbeiningar um val, staðsetningu og viðhald á slökkvitækjum
Var efnið hjálplegt?