Hleð spilara!
Áhættumat fyrir lítil fyrirtæki
Áhættumat fyrir fyrirtæki með 1-9 starfsmenn Allir vinnustaðir eiga að gera áhættumat þ.m.t. einyrkjar og fjölskyldufyrirtæki, sbr. Reglugerð 920/2006
Mikilvægt er að tekið sé á öllum þáttum vinnuverndar við gerð áhættumats
Markmið bæklingsins er að hjálpa litlum fyrirtækjum að gera áhættumat.Á baksíðu eru viðmið sem hjálpa fyrirtækjum að setja sér vinnuverndarstefnu.
Gátlistinn á síðu 2 er hugsaður fyrir lítil fyrirtæki til að kanna vinnuumhverfið. Gátlistinn er almennur og á að nýtast öllum.
Fyrirtæki ættu jafnframt að fara yfir vinnuumhverfisvísa starfsgreina við gerð áhættumats og bæta við þeim atriðum sem mögulega vantar, sjá reitinn “Annað”.
Sjá vinnuumhverfisvísa á heimasíðu Vinnueftirlitsins, www.vinnueftirlit.is
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
