Hleð spilara!

Byggingaverktakar

Fyrirtæki í byggingariðnaði hafa fjölbreyttar þarfir á sviði vátrygginga allt eftir umfangi þeirra og stærð. Á þessu vefsvæði má finna þær tryggingar sem ráðlagðar eru fyrir starfsemi byggingaverktaka.


Skipta má æskilegum tryggingum í þrjá flokka:
  • Lögboðnar tryggingar - Þær tryggingar sem fyrirtækinu ber að hafa samkvæmt lögum
  • Grunnvernd - Þær tryggingar sem við hjá VÍS mælum með fyrir fyrirtækið sem grunnvernd
  • Viðbótarvernd - Þær tryggingar sem við mælum með fyrir fyriræki sem sækjast eftir hámarks vernd

Lögboðin starfsábyrgðartrygging byggingastjóra

Byggingastjóratryggingu verða allir byggingastjórar að hafa í gildi. Tryggingin er tekin á hvert verk.

Brunatrygging húseigna

Brunatrygging húseigna er lögboðin trygging og bætir hún tjón vegna eldsvoða.

Brunatrygging húseigna í smíðum

Smíðatrygging er lögboðin trygging fyrir þá sem eiga húseign í smíðum og bætir hún tjón vegna eldsvoða.

Lögboðin ábyrgðartrygging ökutækja

Öllum bifreiðaeigendum er skylt að vera með í gildi lögboðna ábyrgðartryggingu og slysatryggingu ökumanns og eiganda.


Slysatrygging launþega

Tryggingin er fyrir alla launþega í stéttarfélögum og samkvæmt kjarasamningum ber vinnuveitanda að slysatryggja starfsmenn sína.

Ábyrgðartrygging atvinnurekstrar

Ábyrgðartrygging atvinnurekstrar er mikilvæg öllum rekstri og alltaf ráðlögð þeim sem stunda hverskonar fyrirtækjarekstur.

Lausafjártrygging

Öll fyrirtæki ættu að huga að því að tryggja sína lausafjármuni og er lausafjártrygging sniðin að þeirri þörf.

Rekstrarstöðvunartrygging

Flestum fyrirtækjum í verslun, þjónustu eða framleiðsluiðnaði er mikilvægt að hafa í gildi rekstrarstöðvunartryggingu.

Skaðsemisábyrgð

Skaðsemisábyrgðartrygging er mikilvæg öllum þeim sem selja, dreifa og/eða framleiða hverskonar vöru.

Kaskó

Kaskótrygging hentar öllum eigendum nýlegra bíla og bætir hún margs konar tjón á bifreiðinni.


Slysatrygging

Tryggingin er mikilvæg þeim sem eru í sjálfstæðum atvinnurekstri og fyrirtækjum sem vilja tryggja stjórnendum og lykilstarfsmönnum tekjuöryggi ef slys ber að höndum.

Sjúkra- og slysatrygging

Tryggingin er mikilvæg þeim sem eru í sjálfstæðum atvinnurekstri og fyrirtækjum sem vilja tryggja stjórnendum og lykilstarfsmönnum tekjuöryggi ef sjúkdóma eða slys ber að höndum.

Líftrygging

Líftrygging er mikilvæg öllum þeim sem hafa fyrir einhverjum að sjá eða hafa tekið á sig fjárskuldbindingar. Þegar launatekjur fjölskyldunnar lækka skyndilega við óvænt fráfall, sitja makar og börn oft eftir með erfiðar og stundum óviðráðanlegar skuldbindingar.

Sjúkdómatrygging

Allir sem veikjast af alvarlegum sjúkdómi ætla sér að ná fullum bata. Þá er afar mikilvægt að þurfa ekki að glíma við fjárhagsáhyggjur. Lífís sjúkdómatrygging tryggir þér bætur ef þú greinist með tiltekinn alvarlegan sjúkdóm.

Húseigendatrygging

Húseigendatrygging er mikilvæg öllum húseigendum og veitir hún víðtæka vernd gegn tjónum á húseignum.

Víðtæk eignatrygging

Víðtæk eignatrygging er gjarnan tekin á einstaka dýra muni sem fólk tekur með sér vegna vinnu eða á ferðalögum, svo sem myndavélar, hljóðfæri, vídeoupptökuvélar og fleiri samskonar hluti.

Glertrygging

Glertrygging tryggir allt gler sem búið er að koma fyrir á endanlegum stað.

Vinnuvélatrygging

Vinnuvélatrygging hentar öllum eigendum vinnuvéla og veitir þeim vernd gegn tjónum á vélunum.

Verktakatrygging

Verktakatrygging er ætluð verktökum og byggingaraðilum og veitir hún vernd gegn tjónum á þeim mannvirkjum sem þeir eru að byggja.

Verktrygging

Verktrygging er sniðin fyrir verktaka og greiðir verkkaupa bætur verði vanefndir á verksamningi.

Peningatrygging

Peningatrygging er ætluð þeim sem eru að flytja peninga á milli staða og veitir þeim vernd gegn ýmis konar tjónum.