Hleð spilara!

Kúabændur

Verkefni kúabænda eru mismunandi og tryggingaþörfin því fjölbreytt. Á þessu vefsvæði má finna þær tryggingar sem ráðlagðar eru fyrir starfsemi kúabúa.


Skipta má æskilegum tryggingum í þrjá flokka:
  • Lögboðnar tryggingar - Þær tryggingar sem fyrirtækinu ber að hafa samkvæmt lögum
  • Grunnvernd - Þær tryggingar sem við hjá VÍS mælum með fyrir fyrirtækið sem grunnvernd
  • Viðbótarvernd - Þær tryggingar sem við mælum með fyrir fyriræki sem sækjast eftir hámarks vernd
Samkvæmt íslenskum lögum er skylt að brunatryggja allar húseignir og ábyrgðartryggja allar bifreiðar, dráttarvélar og önnur skráningarskyld ökutæki. Einnig eru fjölmörgum starfstéttum skylt að tryggja sig í starfi. Á þessari vefslóð má finna þær lögboðnu tryggingar sem fyrirtækjaráðgjafar telja henta þinni starfsemi.

Brunatrygging húseigna

Brunatrygging húseigna er lögboðin trygging og bætir hún tjón vegna eldsvoða.

Lögboðin ábyrgðartrygging ökutækja

Öllum bifreiðaeigendum er skylt að vera með í gildi lögboðna ábyrgðartryggingu og slysatryggingu ökumanns og eiganda.

Með grunnvernd er átt við þær tryggingar sem við ráðleggjum kúabændum. Grunnvernd hentar í reynd öllum þeim sem stunda hverskonar atvinnurekstur.

Slysatrygging launþega

Tryggingin er fyrir alla launþega í stéttarfélögum og samkvæmt kjarasamningum ber vinnuveitanda að slysatryggja starfsmenn sína.

Slysatrygging

Tryggingin er mikilvæg þeim sem eru í sjálfstæðum atvinnurekstri og fyrirtækjum sem vilja tryggja stjórnendum og lykilstarfsmönnum tekjuöryggi ef slys ber að höndum.

Ábyrgðartrygging bænda

Ábyrgðartrygging bænda er mikilvæg fyrir bændur sem vernd gegn þeim tjónum sem þeir eða búfé þeirra valda á eignum annarra eða fólki.

Landbúnaðartrygging

Allir bændur ættu að hafa landbúnaðartryggingu sem veitir þeim víðtæka vernd vegna búreksturs.

Lausafjártrygging

Öll fyrirtæki ættu að huga að því að tryggja sína lausafjármuni og er lausafjártrygging sniðin að þeirri þörf.

Hálf-kaskótrygging dráttarvéla til landbúnaðarstarfa

Tryggingin er ætluð eigendum dráttarvéla sem notaðar eru til landbúnaðarstarfa og bætir hún tjón á vélunum.

Kaskó

Kaskótrygging hentar öllum eigendum nýlegra bíla og bætir hún margs konar tjón á bifreiðinni.

Hálfkaskó

Hálfkaskó hentar vel þeim bifreiðaeigendum sem aka mikið úti á þjóðvegum.

Til að sérsníða vátryggingarnar alfarið að þörfum kúabænda og bjóða réttu vátryggingalausnina höfum við sett hér undir þá viðbótarvernd sem ráðleggjum og teljum henta þínum rekstri.

Sjúkra- og slysatrygging

Tryggingin er mikilvæg þeim sem eru í sjálfstæðum atvinnurekstri og fyrirtækjum sem vilja tryggja stjórnendum og lykilstarfsmönnum tekjuöryggi ef sjúkdóma eða slys ber að höndum.

Líftrygging

Líftrygging er mikilvæg öllum þeim sem hafa fyrir einhverjum að sjá eða hafa tekið á sig fjárskuldbindingar. Þegar launatekjur fjölskyldunnar lækka skyndilega við óvænt fráfall, sitja makar og börn oft eftir með erfiðar og stundum óviðráðanlegar skuldbindingar.

Sjúkdómatrygging

Allir sem veikjast af alvarlegum sjúkdómi ætla sér að ná fullum bata. Þá er afar mikilvægt að þurfa ekki að glíma við fjárhagsáhyggjur. Lífís sjúkdómatrygging tryggir þér bætur ef þú greinist með tiltekinn alvarlegan sjúkdóm.

Óveðurstrygging húsa

Óveðurstrygging veitir öllum húseigendum vernd gegn fokskemmdum á sínum húsum.

Húseigendatrygging

Húseigendatrygging er mikilvæg öllum húseigendum og veitir hún víðtæka vernd gegn tjónum á húseignum.

Rekstrarstöðvunartrygging vegna véla

Er mikilvæg flestum framleiðslufyrirtækjum og bætir hún rekstrartap vegna rekstrarstöðvunar af völdum tjóna á vélum.

Vinnuvélatrygging

Vinnuvélatrygging hentar öllum eigendum vinnuvéla og veitir þeim vernd gegn tjónum á vélunum.