Hleð spilara!

Sjálfstætt starfandi heilbrigðisstéttir

Starfsemi sjálfstætt starfandi heilbrigðisstétta er margþætt sérfræðiþjónusta. Á þessu vefsvæði má finna þær tryggingar sem ráðlagðar eru þeim sem tilheyra viðkomandi heilbrigðisstéttum.


Skipta má æskilegum tryggingum í þrjá flokka:
  • Lögboðnar tryggingar - Þær tryggingar sem fyrirtækinu ber að hafa samkvæmt lögum
  • Grunnvernd - Þær tryggingar sem við hjá VÍS mælum með fyrir fyrirtækið sem grunnvernd
  • Viðbótarvernd - Þær tryggingar sem við mælum með fyrir fyriræki sem sækjast eftir hámarks vernd
Samkvæmt íslenskum lögum ber að brunatryggja allar húseignir og ábyrgðartryggja öll skráningarskyld ökutæki. Einnig er sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmönnum skylt að tryggja sig í starfi. Á þessari vefslóð má finna þær lögboðnu tryggingar sem fyrirtækjaráðgjafar telja henta þinni starfsemi.

Lögboðin sjúklingatrygging

Allar sjálfstætt starfandi heilbrigðisstéttir og heilbrigðisstofnanir verða að hafa Sjúklingatryggingu í gildi.

Brunatrygging húseigna

Brunatrygging húseigna er lögboðin trygging og bætir hún tjón vegna eldsvoða.

Lögboðin ábyrgðartrygging ökutækja

Öllum bifreiðaeigendum er skylt að vera með í gildi lögboðna ábyrgðartryggingu og slysatryggingu ökumanns og eiganda.

Atvinnugreinar eru fjölmargar og heilbrigðisþjónusta af ýmsum toga. Með grunnvernd er átt við þær tryggingar sem við ráðleggjum öllum þeim sem stunda hverskonar atvinnurekstur.

Slysatrygging launþega

Tryggingin er fyrir alla launþega í stéttarfélögum og samkvæmt kjarasamningum ber vinnuveitanda að slysatryggja starfsmenn sína.

Heilbrigðisstarfsmenn

Ábyrgðartrygging sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanna er mikilvæg öllum starfsmönnum innan þeirra heilbrigðisstétta sem njóta lögverndaðs starfsheitis. Tryggingin verndar þá gegn fjárkröfum er kunna að falla á þá vegna starfa þeirra.

Ábyrgðartrygging lækna

Ábyrgðartrygging lækna er mikilvæg öllum læknum og verndar þá gegn fjárkröfum er kunna að falla á þá vegna starfa þeirra.

Lausafjártrygging

Öll fyrirtæki ættu að huga að því að tryggja sína lausafjármuni og er lausafjártrygging sniðin að þeirri þörf.

Kaskó

Kaskótrygging hentar öllum eigendum nýlegra bíla og bætir hún margs konar tjón á bifreiðinni.

Tannlæknar

Ábyrgðartrygging tannlækna er mikilvæg öllum tannlæknum og verndar þá gegn fjárkröfum er kunna að falla á þá vegna starfa þeirra.

Skaðsemisábyrgð

Skaðsemisábyrgðartrygging er mikilvæg öllum þeim sem selja, dreifa og/eða framleiða hverskonar vöru.

Til að sérsníða vátryggingarnar alfarið að þörfum starfseminnar og bjóða réttu vátryggingalausnina höfum við sett hér undir þá viðbótarvernd sem ráðleggjum og teljum henta sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmönnum.

Slysatrygging

Tryggingin er mikilvæg þeim sem eru í sjálfstæðum atvinnurekstri og fyrirtækjum sem vilja tryggja stjórnendum og lykilstarfsmönnum tekjuöryggi ef slys ber að höndum.

Sjúkra- og slysatrygging

Tryggingin er mikilvæg þeim sem eru í sjálfstæðum atvinnurekstri og fyrirtækjum sem vilja tryggja stjórnendum og lykilstarfsmönnum tekjuöryggi ef sjúkdóma eða slys ber að höndum.

Líftrygging

Líftrygging er mikilvæg öllum þeim sem hafa fyrir einhverjum að sjá eða hafa tekið á sig fjárskuldbindingar. Þegar launatekjur fjölskyldunnar lækka skyndilega við óvænt fráfall, sitja makar og börn oft eftir með erfiðar og stundum óviðráðanlegar skuldbindingar.

Sjúkdómatrygging

Allir sem veikjast af alvarlegum sjúkdómi ætla sér að ná fullum bata. Þá er afar mikilvægt að þurfa ekki að glíma við fjárhagsáhyggjur. Lífís sjúkdómatrygging tryggir þér bætur ef þú greinist með tiltekinn alvarlegan sjúkdóm.

Aukakostnaðartrygging

Aukakostnaðartrygging er vernd gegn tilfallandi aukakostnaði vegna bótaskylds tjóns á lausafé atvinnurekanda sem verður til þess að rekstur stöðvast.

Húseigendatrygging

Húseigendatrygging er mikilvæg öllum húseigendum og veitir hún víðtæka vernd gegn tjónum á húseignum.

Víðtæk eignatrygging

Víðtæk eignatrygging er gjarnan tekin á einstaka dýra muni sem fólk tekur með sér vegna vinnu eða á ferðalögum, svo sem myndavélar, hljóðfæri, vídeoupptökuvélar og fleiri samskonar hluti.

Rafeindatækjatrygging

Rafeindatrygging er hugsuð fyrir eigendur rafeindatækja og veitir þeim vernd gegn margs konar tjónum eða óhöppum.