Hleð spilara!
Húsfélög
Algengast er að tryggingaþörfin hjá húsfélögum sé húseigendatrygging enda mikilvæg vernd. Á þessu vefsvæði má einnig finna aðrar ráðlagðar tryggingar.
Skipta má æskilegum tryggingum í þrjá flokka:
- Lögboðnar tryggingar - Þær tryggingar sem fyrirtækinu ber að hafa samkvæmt lögum
- Grunnvernd - Þær tryggingar sem við hjá VÍS mælum með fyrir fyrirtækið sem grunnvernd
- Viðbótarvernd - Þær tryggingar sem við mælum með fyrir fyriræki sem sækjast eftir hámarks vernd
Samkvæmt íslenskum lögum er skylt að brunatryggja allar húseignir og ábyrgðartryggja allar bifreiðar. Einnig eru fjölmörgum starfstéttum skylt að tryggja sig í starfi.
Brunatrygging húseigna
Brunatrygging húseigna er lögboðin trygging og bætir hún tjón vegna eldsvoða.
Atvinnugreinar eru fjölmargar og rekstur fyrirtækja og félagasamtaka mjög fjölbreyttur. Með grunnvernd er átt við þær tryggingar sem við ráðleggjum öllum þeim sem stunda hverskonar starfsemi.
Húseigendatrygging
Húseigendatrygging er mikilvæg öllum húseigendum og veitir hún víðtæka vernd gegn tjónum á húseignum.
Glertrygging
Glertrygging tryggir allt gler sem búið er að koma fyrir á endanlegum stað.
Slysatrygging launþega
Tryggingin er fyrir alla launþega í stéttarfélögum og samkvæmt kjarasamningum ber vinnuveitanda að slysatryggja starfsmenn sína.
Engin skjöl hafa verið valin á listann
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
