Sækja um Vildarþjónustu Arion banka
Fjármál & tryggingar - umboð til vinnslu upplýsinga
Vildarþjónustan er kærkominn afrakstur samstarfs öflugra fjármála- og tryggingafyrirtækja. Til að unnt sé að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu, heildstæða ráðgjöf og aðgang að bestu fáanlegu Vildarþjónustukjörum þurfa aðildarfyrirtæki Vildarþjónustu Arion banka að afla sér upplýsinga um núverandi viðskipti þeirra hjá félögunum. Nauðsynlegt er að prenta út neðangreint umboð til þess að samstarfsaðilar geti nálgast upplýsingar um viðskipti þín hjá Arion, VÍS, Lífís, Okkar Lífi, Lýsingu og Öryggismiðstöðinni og með þeim hætti gefið þér kost á bestu kjörum allra samstarfsaðila í Vildarþjónustunnar.
Vinsamlegast skilið undirrituðu umboði í næsta útibú Arion banka, til Okkar lífs, þjónustuskrifstofa VÍS, eða sendið það til: Arion banki, Vildarþjónusta Arion banka / Viðskiptabankasvið, Borgartúni 19, 105 Reykjavík.
Einnig er hægt að samþykkja umboð þetta í Tryggingabanka VÍS og heimabanka Arion.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
