Hleð spilara!

Söfnunartryggingar

Það virðist alltaf eitthvað annað hafa meiri forgang en að spara og er meira aðkallandi á þeirri stundu, hugsunin er að nægur tími sé til að byrja að spara síðar.


Fjármál heimilanna verða sífellt flóknari og krefjast meiri skipulagningar en áður. Þegar farið er á eftirlaun lækka ráðstöfunartekjur flestra talsvert og því mikilvægt að huga strax að reglubundnum sparnaði. Með því að gera ráðstafanir er hægt að tryggja afkomu sína til framtíðar auk þess að geta tekist á við ófyrirsjáanlegar aðstæður seinna meir.

Betra er að byrja smátt og bæta við söfnunina þegar fjárhagurinn leyfir en að fara of geyst af stað.

Söfnunarlíftrygging

Söfnunarlíftrygging samanstendur af líftryggingu ásamt söfnun sem er góð leið fyrir þá sem vilja sýna fyrirhyggju og hefja langtímasparnað.Meira

Sjóðir og gengi

Upplýsingar og tenglar á innlenda og erlenda sjóði.Meira