Hleð spilara!

Slysatrygging íþróttamanna

Slysatrygging íþróttamanna er hópvátrygging sem er sniðin fyrir hópa íþróttafélaga t.d. knattspyrnu eða handbolta og er ætlað að bæta tryggingavernd íþróttafólks.


Tryggingartakar eru íþróttafélög sem vilja auka tryggingavernd fyrir íþróttahópa á þeirra vegum en tryggingin nær til slysa sem verða við æfingar og keppni.  Grunnvátryggingarfjárhæðir vegna örorkubóta, dánarbóta og dagpeninga eru með lágmarksfjárhæðum sem er hægt að hækka til að auka tryggingarverndina. Þá er valkvætt að bæta erlendum sjúkrakostnaði við trygginguna fyrir félög sem fara utan í keppnisferðir.

Til að meta þörf fyrir tryggingavernd getur verið gagnlegt að skoða:

  • Hver er núverandi tryggingarvernd?
  • Hver eru réttindi hjá launagreiðenda?
  • Hvaða önnur bótaúrræði hefur þú, t.d. hjá sjúkrasjóðum lífeyrissjóða og Tryggingastofnun ríkisins?

Mikilvægt er þó að hafa í huga að slys við æfingar í keppnum er gjarnan undanskilið í slysatryggingum sem slysatryggingu íþróttamanna er ætlað að taka á.

Með orðinu slys er átt við skyndilegan, utanaðkomandi atburð sem veldur meiðslum á líkama þess sem tryggður er og gerist án vilja hans. Þá er nýtt í tryggingunni að þess er þó eingöngu krafist að við meiðsl á útlimum að um sé að ræða skyndilegan atburð sem veldur meiðslum á líkama vátryggðs og gerist án vilja hans. Í þeim tilvikum geta meiðsl eins og slit á hásin verið bótaskyld sem var ekki áður. Vátryggingin gildir við íþróttaiðkun hvar sem er í heiminum.