Hleð spilara!

Sjúkrakostnaður innanlands

Trygging fyrir einstaklinga sem hafa flutt lögheimili sitt til Íslands frá útlöndum og þurfa minnst 6 mánaða tryggingu áður en þeir komast inn í almannatryggingakerfið.


Trygging fyrir sjúkrakostnaði innanlands er fyrir þá sem ekki njóta sjúkratrygginga skv. 32. gr. laga nr.117/199 um almannatryggingar. Vátryggingin er skammtímatrygging sem gildir í sex mánuði frá komu til landsins en einstaklingur þarf að hafa átt lögheimili í landinu í 6 mánuði áður en hann telst sjúkratryggður í almannatryggingakerfinu.

Hægt er að velja um neðangreindar vátryggingarfjárhæðir en eigin áhætta er 50.000 kr vegna samanlagðs kostnaðar á tryggingartímabilinu.
Vátrygginarfjárhæðir:
•    2.000.000 kr
•    4.000.000 kr
•    6.000.000 kr

Vátryggður þarf að fylla út beiðnina sjálfur. Mikilvægt er að svara öllum spurningum ásamt því að dagsetning og undirskrift fylgi. Greiðandi þarf einnig að undirrita beiðnina. Greiða þarf iðgjaldið þegar beiðninni er skilað til VÍS. Útlendingastofnun aflar umsækjanda dvalarleyfis kennitölu.