Líftrygging
Lífís líftrygging getur skipt sköpum til að eftirlifandi fjölskylda geti endurskipulagt líf sitt eftir fráfall fjölskyldumeðlims. Engu máli skiptir hvort orsökin er slys eða sjúkdómur.
Lífís líftrygging getur skipt sköpum við óvænt fráfall fjölskyldumeðlims. Launatekjur lækka skyndilega og því getur maki og börn setið eftir með miklar fjárhagslegar skuldbindingar. Bætur líftryggingar geta aldrei komið í veg fyrir það áfall sem fjölskylda verður fyrir við fráfall ástvinar en góð líftrygging getur vissulega stuðlað að því að eftirlifendur geti skipulagt framtíð sína í ljósi breyttra aðstæðna.
Þegar þörfin fyrir líftryggingu er metin er nauðsynlegt að spyrja sig eftirfarandi spurninga:
- Hef ég fyrir öðrum að sjá?
- Hverjar eru skammtímaskuldbindingar mínar (yfirdráttur, kreditkort, skuldabréf, o.fl)?
- Er ég í fjárhagslegum skuldbindingum fyrir aðra?
- Eru aðrir í fjárhagslegum skuldbindingum fyrir mig?
- Á ég sparifé sem nýtist eftirlifandi fjölskyldu vegna tekjubreytinga?
- Hvað þarf að vera til fyrir útfararkostnaði?
Mikilvægt er að vátryggingarfjárhæðin endurspegli þarfir þínar á hverjum tíma. Ef breytingar verða á fjárhagsaðstæðum eða fjölskyldustærð kallar það á endurskoðun líf- og sjúkdómatrygginga.
Lífís líftrygging er greidd út í einu lagi við andlát og eru bæturnar skattfrjálsar. Þú ákveður við tryggingatökuna hverjir fá bæturnar greiddar. Ekki skiptir máli hvort orsök andláts er slys eða sjúkdómur.
Börn tryggingartaka undir 18 ára aldri eru tryggð í líftryggingu foreldris. Hámarksbætur eru 1.000.000 kr.
Allir á aldrinum 18-69 ára geta sótt um líftryggingu og gildir hún til 70 ára aldurs. Líftryggingarfjárhæðin er verðtryggð samkvæmt vísitölu neysluverð. Frá 55 ára aldri lækkar fjárhæðin um ákveðið hlutfall árlega en iðgjaldið breytist ekki þrátt fyrir hækkandi aldur.
Andlát þarf að tilkynna til Líftryggingarfélags Íslands hf. (Lífís) sem gefur upplýsingar um hvaða gögnum þarf að framvísa. Bætur greiðast til rétthafa samkvæmt erfðalögum nr. 8 / 1962.
Er líftryggingarfjárhæðin verðtryggð?
Tryggingin er verðtryggð samkvæmt vísitölu neysluverðs og helst raunvirði hennar að fullu fram til 54 ára aldurs. Eftir að líftryggður hefur náð þeim aldri lækkar líftryggingarfjárhæðin um ákveðið hlutfall árlega en iðgjald breytist ekki. Hugmyndin með þessu er að mæta meginþörfum sem flestra. Verðtryggð líftryggingarfjárhæð er sem sagt fyrir hendi á meðan skuldir og framfærslubyrði er mest.
Er hægt að breyta líftryggingarfjárhæðinni?
Breytingar á fjárhagsaðstæðum og fjölskyldustærð gera endurskoðun líftryggingarverndar nauðsynlega þannig að líftryggingarfjárhæð endurspegli þörfina á hverjum tíma. Það er hægt að nálgast umsóknareyðublöð til breytingar á líftryggingarfjárhæð hjá þjónustufulltrúum VÍS og Lífís, eða á heimasíðu okkar.
Hvernig ber ég mig að ef andlát á sér stað?
Andlát þarf að tilkynna til Líftryggingafélags Íslands hf. sem þá gefur upplýsingar um hvaða gögnum þarf að framvísa til að fá greidda bótafjárhæðina. Framvísa þarf m.a. dánarvottorði og upplýsingum um rétthafa. Bætur greiðast þá til rétthafa samkvæmt lögum (líftryggingarskírteini). Íslensk lög kveða skýrt á um bótarétt líftrygginga og verður fólk að athuga það atriði vel við töku tryggingarinnar og er til uppgjörs kemur.
Getur bótaréttur fallið niður?
Mikilvægt er að fylla umsókn út skýrt og skilmerkilega, gefa réttar upplýsingar og leyna ekki upplýsingum. Bótaréttur getur takmarkast eða fallið niður ef upplýsingar á beiðni eru rangar eða ónógar.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
