Sumarbústaðatrygging
Allir sumarhúsaeigendur ættu að hafa í gildi sumarbústaðatryggingu sem tekur til tjóna á bústaðnum og innbúi.
Tryggingin bætir tjón á innbúi og húseigendatryggingu (valkvætt) á sumarhúsinu sjálfu vegna t.d. bruna, vatns, innbrots, ráns eða óveðurs. Sé valið að tryggja sumarhúsið þá bætist ábyrgðartrygging sjálfkrafa við sumarbústaðatrygginguna.
Með sumarbústaðatryggingu myndast sjálfkrafa vernd á innbúi hjá Viðlagatryggingu Íslands vegna náttúruhamfara samkvæmt skilmálum Viðlagatryggingar.
Tryggingataki velur sjálfur það innbúsverðmæti sem hann telur henta sér en vátryggingarfjárhæð sumarhússins miðast ávallt við brunabót sem ákvarðast af mati Fasteignamats ríkisins.
Tjón í sumarbústöðum eru nokkuð algeng, og má þar nefna tjón af völdum vatns, innbrota og bruna. Margt er hægt að gera til að fyrirbyggja þessi tjón og mikilvægt að kynna sér það hér.
