Hleð spilara!

Lögboðin brunatrygging

Brunatrygging húseigna er lögboðin trygging sem bætir tjón á fasteign vegna eldsvoða


Brunatrygging húseigna er lögboðin trygging en öllum húseigendum er skylt samkvæmt lögum að vátryggja öll íbúðarhúsnæði gegn eldsvoða.

Vátryggingarfjárhæð miðast við brunabótamat húseigna. Óskir þú eftir að láta meta eða endurmeta húseign hefur þú samband við Þjóðskrá Íslands. Ný hús skal meta eigi síðar en 4 vikum eftir að þau eru tekin í notkun og er eiganda skylt að sjá um að slíkt sé tilkynnt til félagsins.

Þegar tekin er brunatrygging myndast sjálfkrafa vernd hjá Viðlagatryggingu Íslands vegna náttúruhamfara.

Samkvæmt lögum er vátryggingafélögum gert að innheimta ýmis opinber gjöld þegar þau innheimta iðgjöld vegna brunatrygginga húseigna. Þessi gjöld eru:
•    Viðlagatryggingargjald
•    Brunavarnargjald
•    Gjald til Ofanflóðasjóðs
•    Matsgjald til Fasteignaskrár Íslands