Hleð spilara!
H plús húsnæðistrygging
H plús sameinar húsnæðistryggingar einstaklinga í eina tryggingu. Grunnur tryggingarinnar er lögboðin brunatrygging en viðbótarbrunatrygging og húseigendatrygging eru valkvæðar.
Með H plús er hægt að tryggja húseignina fyrir óvæntum óhöppum sem geta verið mjög kostnaðarsöm og valdið gríðarlegu óþægindum og raski á heimilinu.
H plús samanstendur af eftirfarandi:
Lögboðin brunatrygging
• Brunatrygging húseigna er lögboðin trygging sem bætir tjón á fasteign vegna eldsvoða
Viðbótarbrunatrygging (valkvæð)
• Húseigendur sem telja að brunabótamat húseignarinnar dugi ekki til endurbyggingar eftir tjón geta óskað eftir viðbótarbrunatryggingu.
Húseigendatrygging (valkvæð)
• Tryggir húseignina fyrir tjónum á borð við vatnstjón innan veggja hússins, rúðubrot, hrun á innréttingum, brot á hreinlætistækjum, brot á keramikhelluborði, skemmdir vegna innbrots o.fl.
H plús bætir tjón sem verða á húseigninni sjálfri en F plús bætir tjón sem verður á innbúi heimilisins.
Forvarnir eru mikilvægar til að fyrirbyggja tjón á húseignum. Lesa má allt um þær hér eða á forvarnaheimilinu. Gátlista um hvernig má fyrirbyggja tjón á heimilum má nálgast hér.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
