Hleð spilara!
Brunatrygging húseignar í smíðum
Brunatrygging húseigna í smíðum er tímabundin trygging fyrir þá sem eru að byggja þangað til endanlegt brunabótamat liggur fyrir.
Tryggingin bætir tjón af völdum eldsvoða, eldingar, sprenginga, sótfalls, loftfara og björgunar- og slökkviaðgerða.
Samkvæmt lögum er skylt að brunatryggja allar húseignir í smíðum og ber eigendum að sjá til þess að tryggingin sé í gildi á meðan smíði hússins stendur yfir.
Þegar tekin er brunatrygging á hús í smíðum, myndast sjálfkrafa vernd hjá Viðlagatryggingu Íslands vegna náttúruhamfara.
Vátryggingartaki ákveður vátryggingarfjárhæðina fyrir húsið og skal hún vera sem næst byggingarkostnaði hússins á hverjum tíma. Endurskoða þarf vátryggingarfjárhæðina jafnt og þétt yfir byggingartíma eignarinnar.
Þegar hús er fullbúið skal eigandi sjá um að húseignin sé tekin í brunabótamat af Þjóðskrá Íslands. Þá fellur brunatrygging húss í smíðum niður og við tekur lögboðin brunatrygging húseigna. Einnig er hægt að kaupa húseigandatryggingu á húseignina.
Ný hús skal meta eigi síðar en 4 vikum eftir að þau eru tekin í notkun og er eiganda skylt að sjá um að slíkt sé tilkynnt vátryggjanda.
Forvarnir eru mikilvægar til að fyrirbyggja tjón á húseignum. Lesa má allt um þær hér eða á Forvarnaheimilinu. Gátlista um hvernig má fyrirbyggja tjón á heimilum má nálgast hér.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
