Hleð spilara!
VISA
VÍS hefur umsjón með ferðatryggingum VISA korthafa vegna kreditkorta sem gefin eru út af BYR, Arion, Landsbankanum, MP Banka og Sparisjóðunum.
Ef tilskilinn hluti ferðakostnaðar, fargjalds og gistingar, er greiddur áður en ferð hefst annað hvort með eingreiðslu eða með raðgreiðslum VISA, nýtur korthafinn sjálfkrafa öflugrar ferðatryggingar og neyðarþjónustu um heim allan.
Neyðarþjónustan útvegar til dæmis lækni og sjúkrahúsvist, skipuleggur og sér um að flytja hinn vátryggða heim frá útlöndum ef hann slasast þar eða veikist alvarlega.
Þeir korthafar sem ekki greiða ferðakostnað með VISA kreditkorti fyrir brottför geta keypt ferðatryggingu korthafa. Það geta einnig þeir sem ætla að vera lengur en 60 daga í orlofs- eða viðskiptaferð.
Reynslan sýnir að margt getur gerst á ferðalögum erlendis og því er mikilvægt að huga að forvörnum áður en lagt er af stað.
- Ferðalag þeirra sem hafa VISA Platinum kort getur varað í allt að 90 daga. Vari ferð þeirra í lengri tíma geta þeir keypt viðbótartryggingu eins og aðrir korthafar.
Hér má sjá nokkra punkta hvernig best er að undirbúa ferðalagið ásamt gátlista sem leiðir okkur í gegnum hvernig best er að skilja við heimilið sitt áður en lagt er að stað í fríið.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
