Hleð spilara!

MasterCard

VÍS hefur umsjón með ferðatryggingum MasterCard korthafa, vegna MasterCard kreditkorta sem gefin eru út af Arion og Landsbankanum.


Ef tilskilinn hluti ferðakostnaðar, fargjalds og gistingar, er greiddur áður en ferð hefst annað hvort með eingreiðslu eða með raðgreiðslum MasterCard kreditkorts, nýtur korthafinn sjálfkrafa öflugrar ferðatryggingar og neyðarþjónustu um heim allan.

Neyðarþjónustan útvegar til dæmis lækni og sjúkrahúsvist, skipuleggur og sér um að flytja hinn vátryggða heim frá útlöndum ef hann slasast þar eða veikist alvarlega.

Þeir korthafar sem ekki greiða ferðakostnað með MasterCard kreditkorti fyrir brottför geta keypt ferðatryggingu korthafa. Það geta einnig þeir sem ætla að vera lengur en 60 daga í orlofsferð.

Ef þú ert ekki viss um hver tryggir greiðslukortið þitt þá er hér að finna yfirlit yfir hvaða tryggingafélag tryggir hvaða greiðslukort.

Reynslan sýnir að margt getur gerst á ferðalögum erlendis og því er mikilvægt að huga að forvörnum áður en lagt er af stað.

Hér má sjá nokkra punkta hvernig best er að undirbúa ferðalagið ásamt gátlista sem leiðir okkur í gegnum hvernig best er að skilja við heimilið sitt áður en lagt er að stað í fríið.