Íþróttir
Huga þarf mjög vel að tryggingum í tengslum við íþróttir, sérstaklega sé tekið þátt í skipulögðum keppnum
Það gætir oft misskilnings hjá fólki hvernig tryggingamálum þess er háttað varðandi íþróttir. Það eiga allir einstaklingar sem eru orðnir 16 ára og eldri einhvern rétt á bótum frá Tryggingastofnun ríkisins ef þeir slasa sig í íþróttum í frítíma sínum. Í flestum tilvikum eru þessar tryggingar engan veginn nægjanlegar. Þess vegna er mjög mikilvægt að tryggja sig sérstaklega í frítíma þar sem almennar tryggingar launþega ná yfirleitt einungis til slysa í vinnutíma.
Í fjölskyldutryggingum VÍS, F plús 1, F plús 2, F plús 3 og F plús 4 er frítímaslysatrygging. Þessi frítímaslysatrygging nær til atvika í íþróttum sem stundaðar eru til heilsubótar og skemmtunar. Tryggingin bætir hins vegar ekki slys á einstaklingum í frítíma þeirra ef slysið verður í keppni eða við æfingar til undirbúnings fyrir keppni í hvers konar íþróttum. Þetta ákvæði á þó ekki við börn yngri en 16 ára. Þau njóta tryggingarverndar úr F plús tryggingu vegna slysa sem verða í keppni eða við æfingar fyrir keppni.
Það er mjög mikilvægt að einstaklingar átti sig á því að þeir eru ekki tryggðir í almennri frítímaslysatryggingu ef um keppni eða undirbúning fyrir keppni er að ræða. Íþróttafélögin kaupa í mörgum tilvikum sérstakar tryggingar fyrir íþróttafólk sem er að keppa á þeirra vegum.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
